Ekki leggja við Hörpu

Familían kikkaði í Hörpu í gær meira um það síðar, nú skiptir meira máli að láta vita af því að það MÁ EKKI LEGGJA VIÐ HÖRPUNA. Við vorum svo óheppinn að leggja þar fyrir utan og þegar við komum út voru tveir stöðumælaverðir að sekta alla bílana sem voru fyrir utan bygginguna. Ég skildi ekki alveg enda hvergi merkt að það megi ekki leggja þarna. En þegar ég spurði bílastæðagæjanna svaraði hann heldur þurr á manninn og stuttur í spuna: Þú átt að leggja hinu megin t.d. í Kolaportinu. " Svo var hann rokinn að skrifa næstu sekt. Þetta finnst mér alveg útí hróa. Byrjið á því að setja upp merkingar um að það megi ekki leggja þarna ekki fara svona illa með náungann nóg er nú samt. Minnir mann á eitthvað land í austri svona framkoma.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það er eins og allt hjálpist að við að gera þetta hús óáhugavert og einhvernveginn óþjóðlegt.  Vonandi bara byrjunarörðugleikar, en samt............

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 10.6.2011 kl. 19:25

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

já vona það en reyndar verður nú að viðurkennast að húsið er næs að utan en að innan vantar allan karakter, reyndar er stóri salurinn með sál -

Elfar Logi Hannesson, 11.6.2011 kl. 00:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband