Act alone 2011

Það styttist í hátíðina einleiknu í einleikjabænum Ísafirði. Act alone verður haldin dagana 12. - 14. ágúst og verður boðið uppá úrval innlendra leikja og erlendan gestaleik. Þetta er áttunda árið í röð sem Act alone er haldin en hátíðin er án efa ein flottasta listahátíð landsbyggðarinnar auk þess að vera eina einleikjahátíð landsins. Lengi vel var Act alone eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi en fyrir skömmu varð til önnur hátíð sem haldin er í borginni og nefnist Lókal. Að vanda verður aðgangur að öllum sýningum á Act alone ókeypis enda er þetta hátíð og mikilvægt að sem flestir geti tekið þátt í ævintýrinu. Fjölmörg fyrirtæki haft styrkt hátíðina nú sem endranær auk þess sem Menningarráð Vestfjarða setur slatta af monnípeningum til handa hátíðinni og við eigum einnig von á aurum frá Ísafjarðarbæ. Dagskrá Act alone 2011 verður birt allra næstu daga á heimasíðunni www.actalone.net En til að kitla smá má nefna að meðal sýninga á Act alone í ár er Mamma ég!, Jón Sigurðsson strákur að vestan, Bjarni á Fönix, Skjalbakan og síðast en ekki síst mun Prinsessan á Bessastöðum koma í opinbera heimsókn á Ísafjörð sem verður á sjálfu Silfurtorginu. Sýningar verða annars í Edinborgarhúsinu en á lokadegi hátíðarinnar verða sýningar á höfuðbóli Vestfjarða á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Eitt er víst Act alone verður alveg einleikin og nú er bara að taka dagana frá (12. - 14. ágúst) og taka þátt í ævintýrinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Og ég sem verð í Fljótavík þessa daga og missi af öllu saman. En gangi ykkur vel og þú átt heiður skilinn Elfar Logi fyrir að koma þessu á koppinn, ásamt svo mörgu öðru.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 16.7.2011 kl. 20:56

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Það er nú ekki amalegt að vera í Fljótavíkinni við familían vorum svo heppin að vera þar fyrir nokkrum árum með Hjalta og familí það voru dýrðardagar - geggjað pleis. Góða ferð og hafið það sem allra best í paradísinni

Elfar Logi Hannesson, 17.7.2011 kl. 14:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband