KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ Á FERÐ UM LANDIÐ

Í dag hófst leikferð Kómedíuleikhússins um landið með sýningu á Dimmalimm á Siglufirði. Markar hún upphaf á hringferð Komedíu sem stendur næsta mánuðinn. Í þessari viku verður Kómedíuleikhúsið á norðurlandi og sýnir vítt og breytt eða allt frá Borðeyri til Akureyrar með leikina Dimmalimm og Gísla Súrsson. Í næstu viku verða Gísli og Dimmalimm á Austurlandi og ber þeim m.a. niður á Neskaupstað, Þórshöfn, Eskifirði og Reyðarfirði. Þaðan liggur leiðin til höfuðborgarinnar þar sem sýndir verða leikirnir Skrímsli og Gísli Súrsson. Sýningar í Reykjavík standa yfir frá 1. -12. október. gísli súri

Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband