LISTAMANNAÞING Á ÍSAFIRÐI Í KVÖLD

Kómedíuleikhúsið í samvinnu við listamenn í Ísafjarðarbæ efnir til Listamannaþings á Hótel Ísafirði í kvöld kl.20. Þema þingsins er ,,Staða og framtíð listalífs í Ísafjarðarbæ". Sannarlega stór spurning og má því búast við fjörugu þingi í kvöld. Aðgangur að þingingu er ókeypis og verður boðið uppá kaffi og rjómapönsu í boði þingsins. Fundarstjóri Listamannaþingsins er Annska en dagskráin er á þessa leið:

1. Fulltrúar listgreinanna fimm fjalla um stöðu og framtíð sinnar greinar:

Danslist: Eva Friðþjófsdóttir

Kvikmyndalist: Lýður Árnason

Leiklist: Elfar Logi Hannesson

Myndlist: Ómar Smári Kristinsson

Tónlist: Hulda Bragadóttir.

2. Listahátíðarbærinn Ísafjörður. Fjallað verður um listahátíðirnar þrjár á Ísó.

Leiklistarhátíðin Act alone

Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður

Tónlistarhátíðin Við Djúpið.

3. Menningarappartötin fyrir vestan kynna sig.

Menningarmálanefnd Ísafjarðarbæjar - Ingi Þór Ágústsson

Menningarráð Vestfjarða - Jón Jónsson.

Einnig verður boðið uppá tónlistaratriði á Listamannaþinginu í kvöld. Þröstur Jóhannesson flytur frumsamin lög við ljóð Steins Steinars en lögin eru í sýningu Kómedíuleikhússins, Búlúlala - Öldin hans Steins, sem verður frumsýnd verður í næstu viku. Einnig mun hljómsveitin Grjóthrun stíga á stokk en í sveitinni eru m.a. Grímur Atlason og Lýður Árnason. Semsagt nú vita allir hvað þeir eru að gera í kvöld: Listamannaþing á Hótel Ísafirði kl.20. Sjáumst.

Eric aloneFjallað verður um leiklistarhátíðina Act alone á Listamannaþinginu á Ísó í kvöld

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég er stolt af ykkur öllum.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 30.4.2008 kl. 13:23

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Takk og þú átt nú líka mikinn þátt í listinni á ísó í gegnum áratugina, vona að þú kikkir á okkur í kvöld

Elfar Logi Hannesson, 30.4.2008 kl. 15:30

3 Smámynd: Sigrún Sigurðardóttir

Takk fyrir kaffið og pönnsurnar, það var mjög áhugavert sem kom fram á listamannaþinginu í gærkvöldi og skemmtileg samkoma. enn og aftur takk fyrir mig..

Sigrún Sigurðardóttir, 1.5.2008 kl. 16:35

4 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Takk sömuleiðis já þetta var sannarlega skemmtilegt þing og er án efa komið til að vera hér á Ísó - gangi þér allt í haginn í listinni

Elfar Logi Hannesson, 1.5.2008 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband