AÐVENTA AÐ SUMRI

Við höldum áfram að kynna dagskrá Act alone 2008 og nú er komið að leiksýningum hátíðarinnar. Einsog áður hefur komið fram verða 24 sýningar á fjölum Act alone þetta sumarið. Aðventa er einn af fjölmörgu einleikjum þessa leikárs og verður að sjálfsögðu sýndur á Act alone 2008.

AÐVENTA
Laugardaginn 5. júlí kl.22 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Möguleikhúsið
Eftir Gunnar Gunnarsson
Leikgerð, leikstjórn: Öldu Arnardóttur
Leikmynd, búningar: Messíana Tómasdóttir
Lýsing: Bjarni Ingvarsson
Tónlist, hljóðfæraleikur: Kristján Guðjónsson
Leikari: Pétur Eggerz

,,Þegar hátíð fer í hönd, búa menn sig undir hana, hver á sína vísu.“


Þannig hefst saga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hún kom fyrst út á dönsku, en síðar þýddi höfundurinn hana sjálfur á íslensku.
Hér er sagt frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í vetraríki aðventunnar að leita þess fjár sem eftir varð er smalað var um haustið. Það er köllun hans að koma þessum eftirlegukindum til byggða fyrir hátíðirnar. Söguna byggir höfundur á frásögnum af frægum svaðilförum Benedikts Sigurjónssonar, öðru nafni Fjalla-Bensa, á Mýrdalsöræfum og einkum þó eftirleitarferð sem hann fór í desember 1925. Þetta er klassísk saga um náungakærleika og fórnfýsi í vetrarhörkum íslenskra öræfa.
Í sýningunni er unnið eftir aðferðum frásagnarleikhússins þar sem einn leikari. Pétur Eggerz, stendur á sviðinu, flytur söguna og bregður sér jafnframt í hlutverk helstu persóna. Þá skipar hljóðmynd stóran sess í sýningunni og á þátt í að skapa heim sögunnar, en höfundur hljóðmyndarinnar er Kristján Guðjónsson sem hér vinnur sitt fyrsta verkefni með Möguleikhúsinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband