ÞJÓÐSÖGUR ÚR ÍSAFJARÐARBÆ UPPSELD

Jólahljóðbókasala Kómedíuleikhússins gekk framar öllum vonum. Korter fyrir jól kom fjórða hljóðbókin út Þjóðsögur af Ströndum og var henni dreyft í verslanir um land allt líkt og hinar fyrri. Gaman er að geta þess að Kómísku hljóðbækurnar voru vinsælar í jólapakkann þessi jólin og nú er svo komið að helmingur verkanna er uppseldur. Þar er um að ræða tvær fyrstu hljóðbækurnar Þjóðsögur úr Vesturbyggð og Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ. Hinar tvær eru enn til hjá útgefanda Þjóðsögur úr Bolungarvík og Stranda hljóðbókin. Það gæti þó verið að hægt væri að næla sér í hinar uppseldu hljóðbækur í einhverjum Eymundsson verslunum, þori þó engu að lofa. Kómedía heldur áfram að gefa út þjóðlegar hljóðbækur á komandi ári og núna strax í janúar verður skundað í hljóðver á nýjan leik. Að þessu sinni verða það Þjóðsögur úr Súðavík og má eiga von á þeirri hljóðbók fyrir páska annó 2009. Hljóðbækur Kómedíu fást á heimasíðunni www.komedia.is og munið það er frí heimsending. Einnig fást Kómísku hljóðbækurnar í Eymundsson um land allt og í verslunum víða á Vestfjörðum.
Kómedíuleikhúsið óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir frábært Kómískt ár.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel skiljanlegt að bækurnar tætist út ! Stuttar sögur og vel skiljanlegar og flottur lestur hjá þér ! Tælensk vinkona fékk eina í þeirri von að skilja hugsun okkar og atferli enn frekar.  Gleðilegt ár.

aðdáandi. (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 02:32

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Já þetta er skemmtilegt að heyra. Megi nýja árið vera þér rosa gott.

Elfar Logi Hannesson, 3.1.2009 kl. 21:55

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Gleðilegt ár Elfar minn og takk fyrir það gamla.  'Eg ætla mér að vera duglegri við að fylgjast með hinu frábæra Kómedíuleikhúsi á nýju ári.  Þú átt heiður skilinn fyrir dugnaðinn.  Ætlaði alltaf að fara á sýninguna í Bolungarvík, en var annað hvort bundin yfir börnum, eða hafði ekki þrótt.  Þar ætla ég að ráða bót á.  

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 7.1.2009 kl. 12:51

4 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Já árið kollegi Ásthildur og þakka hlý orð í minn Kómíska garð. Sýningin í Bolungarvík, Pétur og Einar, er í vetrarfríi en sýningar hefjast aftur í sumar og er stefnt að því að sýna leikinn reglulega yfir sumartímann. Þannig að við sjáumst í leikkhúsinu.

Elfar Logi Hannesson, 9.1.2009 kl. 23:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband