GÍSLI SÚRSSON Í GEIRÞJÓFSFIRÐI - EINSTÖK FERÐ Á SÖGUSLÓÐ

- ATH ÞAÐ ER UPPSELT Í FYRRI FERÐINA EN ÖRFÁ SÆTI LAUS Á ÞÁ SEINNI
Nú eru síðustu forsvör að sjá leikverkið Gísla Súrsson eftir Elfar Loga Hannesson og Jón Stefán Kristjánsson.Dagana 22. og 31. júlí eru síðustu sýningar á leikverkinu sem Elfar Logi hefur gert svo ógleymanlegt. Elfar Logi mun leika í því umhverfi sem sagan gerist í, inn í Geirþjófsfirði skammt frá Einhamri þar sem Gísli endaði lífdaga sína eftir frækilega orrustu.

Siglt verður með Höfrungi BA 60, genginn söguhringur þar sem orrustan er rifjuð upp, í söguhringnum er gengið fram á leikhúsið, í skóginum, það verður kyngilmögnuð og ógleymanleg stund.
Brottför frá Bíldudal 22. júlí kl. 11.00, komið til baka á Bíldudal kl. 16.00
Verð: Sigling, leiðsögn, leiksýning kr. 6.500,-

Brottför frá Bíldudal 22. júlí kl. 14.00, komið til baka á Bíldudal kl. 19.00
Bóka þarf í ferðirnar tímanlega í síma 894-1684 eða sendið póst á jon@bildudalur.is
Brottför frá Bíldudal 31. júlí kl. 11.00, komið til baka á Bíldudal kl. 16.00
Verð: Sigling, leiðsögn, leiksýning kr. 6.500,-
Brottför frá Bíldudal 31. júlí kl. 14.00, komið til baka á Bíldudal kl. 19.00
Bóka þarf í ferðirnar tímanlega í síma 894-1684 eða sendið póst á jon@bildudalur.is
Athugð, þetta eru síðustu sýningarnar á þessu frábæra leikverki, síðasti séns að sjá þessa frábæru uppfærslu í einstöku umhverfi.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er tækifæri sem fólk á ekki að láta fram hjá sér fara. Ef það er ennþá möguleiki að komast í þessar síðustu sýningar mæli ég með að fólk drífi sig að bóka. Ég naut þess að sjá þetta verk í frábæru veðri í Geirþjófsfirði fyrir nokkrum árum, hugsanlega í fyrsta skipti sem það var í boði og það var frábær upplifun.

Takk fyrir mig.

Dagný (IP-tala skráð) 22.7.2009 kl. 13:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband