Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

MYNDIR - JÓLASVEINAR GRÝLUSYNIR ANNAR HLUTI

Hér koma fleiri myndir af hinum frábæru Jólasveinum Grýlusonum eftir listakonuna Marsibil G. Kristjánsdóttur. Minni á að hægt er að hitta þessa Kómísku jólasveina í Tjöruhúsinu ævintýrahúsi jólasveinanna í sýningunni Jólasveinar Grýlusynir. Næstu sýningar eru núna um helgina á laugardag 24. nóv. og sunnudag 25. nóv. og hefjast sýningarnar kl.14.00. Miðapantanir á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is Hér koma þrír Jólasveinar Grýlusynir.

stufur Stúfur sem alltaf er svo ljúfur.

jólasveinar 005 Gluggagægir liggur á glugga og er að glápa.

jólasveinar 006 Stekkjastaur orðinn langur enda reynir á þessi gangur.


MYNDIR - JÓLASVEINAR GRÝLUSYNIR

Haldiði að Kómedíuleikarinn hafi ekki loksins náð að minnka myndirnar af Kómísku jólasveinunum. Reyndar tókst það ekki fyrr en frúin komst í málið. Já svona er að vera kall með þumalputta. Höfundur jólasveinanna Kómísku er Marsibil G. Kristjánsdóttir fjölhæf listakona frá Þingeyri. Jólasveinar Grýlusynir koma hér nokkrir og á næstunni fleiri jólasveinamyndir.

jólasveinar 001 Askasleikir.

jólasveinar 002 Bjúgnakrækir

jólasveinar 003 Kertasníkir

jólasveinar 004 Þvörusleikir


JÓLASVEINAR GRÝLUSYNIR MEÐ JÓLALEGAN JÓLALEIK

Jólasveinar Grýlusynir eru sannarlega komnir í jólaskap því á frumsýningu kynntu þeir til sögunnar glæsilegan jólaleik. Hafa þeir náð samstarfi við hina frábæru verslun Hamraborg á Ísafirði sem taka þátt í ævintýrinu. Leikurinn er einfaldur en veglegur, aðgöngumiðinn á sýninguna er lykillinn á leiknum. Aðeins þarf að merkja kortið og skila því í Hamraborg og þá ertu komin í jólapott Jólasveinanna. Á baki aðgöngumiðans segir Stúfur jólasveinn frá leiknum um leið og hann þakkar gestum komuna. Best að gefa honum orðið:

,,Jæja krakka pakkar! Mikið var nú gaman í dag, ég hlakka sko alveg rosa mikið til jólanna. Finnst þér jólakortið (aðgöngumiðinn innsk. Kómedíu) okkar sveinanna ekki flott? Það er nú gott. En þetta er nú ekkert venjulegt jólakort. Að sýningu lokinni og þegar þú ert búinn að fá þér heitt súkkulaði og smákökur (innifalið í miðaverði innsk. Kómedíu) þá væri sniðugt að þramma í Hamraborg því þar bíða þín girnileg jólatilboð. Ekki nóg með það heldur skaltu líka merkja kortið þitt og setja það í Grýlupottinn, úps, nei ég meina í jólapottinn í Hamraborg. Á Kjötkróksdegi, á Þorláksmessu, verður svo dregið úr pottinum um fjölda vinninga. Vinngaskráin verður birt á heimasíðu Kómedíu. Fyrir að skila kortinu færðu verðlaun frá Stekkjastaur og það er auðvitað súkkulaðistaur í verðlaun. Hlakka svo til að sjá þig aftur. Þinn vinur í fjöllunum, Stúfur sem alltaf er svo ljúfur."


JÓLASTUÐ Í ÆVINTÝRAHÚSI JÓLASVEINANNA Á ÍSÓ ALLA HELGINA

Þá er fyrsta sýningarhelgi á jólaleiknum Jólasveinar Grýlusynir lokið og er óhætt að segja að vel hafi gengið. Fullt var á allar sýningar helgarinnar jólalegagóð og mikil stemning. Jólasveinarnir Grýlusynir skemmtu sér og öðrum einsog þeim einum er lagið. Undanfarið hefur verið birt hér á Kómedíublogginu jólasveinavísur Grýlusona en vísurnar eru fleiri. Unglingspilturinn í verkinu sem er að leita að strokukúnni Búkollu fer með bæði loka og upphafsvísu. Sú fyrri er kveðin uppá gamla móðan svona einsog þululestur en hin seinni er sungin. Svona er fyrri vísan:

Vá ég er búinn að hanga hér í allan dag

að leita gömlu beljunni, - ég er að fá slag.

Hér er ekkert gemsa samband enginn heyrir neitt

amma heima brjáluð og klukkan orðin eitt.

Sko amma hún á belju sem ég átti' að leita að

beljan er svo rugluð - hún vill alltaf finna stað

sem enginn getur fundið - og amma trúir því

að í þetta skipti feli hún sig fjöllunum í.

Búkolla - Búkolla - Búkolla - Búkolla!

Pabbi' og mamma voru orðinn drulluleið á því

að hafa mig alltaf hangandi tölvunni í.

Þau píndu mig í sveitina að vera ömmu hjá.

Því þar er ekkert internet og enga pizzu' að fá.

Í staðinn fæ ég hafragraut og hlusta á Rás 1.

Sem ég get ekki skilið því hún segir ekki neitt.

Þar eru bara fréttirnar svo dánafregnirnar,

í mesta lagi endurteknar auglýsingarnar!

Ég verð að finna Búkollu.

Búkolla - Búkolla - Búkolla - Búkolla!

Ég er ekki að fíla það að þvælast hérna um

rennblautur í fæturna á gallabuxunum.

Amma þurfti' að senda mig hingað upp í fjöll

að leita' að henni Búkollu, ég vildi hún væri orðinn tröll!


EINLEIKIN JÓLASTEMNING Á JÓLAFRUMSÝNINGU

Áhorfendur streyma inní Tjöruhúsið ævintýrahús jólasveinanna kaupa sér kannski smá jólanammi finna sér gott sæti. Svo slær klukkan 14.00. Ljós niður og sýningin hefst. Leikurinn er sannkallað ævintýri þar sem gömlu íslensku jólasveinarnir leika af alls oddi grínast og syngja hver með sínu nefi. Unglingspilturinn skilur ekkert í þessu er í fyrstu ekki að fíla það að vera staddur hér uppi á fjöllum þar sem er ekki einu sinni gemsasamband. Verst af öllu er þó að hann finnur ekki það sem hann leitar að. Amma hans hafði sent hann uppá fjöll til að leita af kúnni Búkollu sem hefur strokið af bænum einn ganginn enn. En allt fer vel á endanum og strákurinn fer bara að fíla jólasveinana og þegar hann loks finnur Búkollu er lífið geggjað. Reyndar hafði kúinn minnkað meira en góðu hófi gegnir þar sem jólasveinarnir höfðu mjólkað kúnna aðeins of mikið enda var mikið mjólkurleysi í hellinum korter fyrir jól. En þegar þeir voru komnir með 200 lítra af mjólk sem sumir sögðu reyndar að væri 600 lítrar þá var komið nóg í jólagrautinn hennar Grýlu. Ævintýri gerast enn og pilturinn kveður sveinanna áður en hann fer með Búkollu, í rassvasanum, heim til ömmu. Ljós niður. Áhorfendur klappa og klappa og klappa. Leikari þakkar fyrir sig og aðrir listamenn sýningarinnar eru kallaðir á svið og þakkað frábært framlag til sýningarinnar. Ljós kveikt í sal og inn kemur vagn með dýrindis jólaveitingum. Heitu súkkulaði með rjóma og heimabökuðum smákökum. Menn taka tal saman og stemningin er frábær. Einhvern veginn svona fór frumsýningin á jólaleiknum Jólasveinar Grýlusynir fram. Og nú fyrst byrjar ævintýrið 2. sýning á morgun UPPSELT á hana. Næstu sýningar eru um næstu helgi laugardaginn 24. nóv. og sunnudaginn 25. nóv. og hefjast kl.14.00 en leikhúsið er opnað hálftíma fyrir sýningu. Miðasala á sýningar næstu helgar eru í fullum gangi á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is


ELLEFTI, TÓLFTI OG ÞRETTÁNDI KÓMÍSKI SVEINNINN OG ÞÁ ERU ALLIR MÆTTIR ENDA FRUMSÝNING Í DAG

Þá koma síðustu þrír jólasveinarnir í Kómedíuleikhúsið og þá eru samankomnir í leikhúsinu 13 jólasveinar. Sem segir okkur bara eitt það verður mikið fjör og ævintýri einsog alltaf þegar þessir fjörugu sveinar koma saman. Og nú er komið að stóra kómíska jóladeginum. Jahá svona snemma, það er nefnilega frumsýning í dag á splunkunýju íslensku jólaleikriti sem heitir Jólasveinar Grýlusynir. Sannkallað ævintýri um gömlu íslensku jólasveinana og unglingspilt sem fer upp til fjalla að leita að kúnni Búkollu. Höfundar leiksins eru Elfar Logi Hannesson og Soffía Vagnsdóttir, Kómedíuleikarinn er einn á sviðinu og Soffía leikstýrir. Aðrir listamenn sem koma að sýningunni eru Hrólfur Vagnsson sem semur tónlist, Marsibil G. Kristjánsdóttir hannar kómísku jólasveinana og einnig leikmynd og ljósahönnuður er Jóhann Daníel. Jólasveinar Grýlusynir verða sýndir í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á Ísafirði sem er nú orðið sannkallað ævintýrahús jólasveinanna. Leikurinn verður sýndur um helgar í nóvember og desember. Miðasala á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is Þá eru síðustu þrír sveinarnir mættir og telja niður fyrir okkur. Hurðaskellir, Kertasníkir og Stekkjastaur koma hér.

HURÐASKELLIR

Hurðaskellir heiti ég og elska að hafa hátt.

Ef einhversstaðar sé ég hurð sem stendur upp á gátt,

þá rýk ég til og skelli

með ógnarlegum hvelli,

svo hrekkur þú í kút,

en ég er rokinn út!

Hristist hún á hjörunum.

Skelfur þú í spjörunum!

Ha, ha hæ.

Ég skellihlæ

og nægju mína fæ.

KERTASNÍKIR

Ég játa það að sérvitringur er ég

því áráttan í kerti hún er ferleg.

Ég kann mér ekki læti

og léttur er á fæti

sé ég kerti.

Ef heppinn er og eignast þennan munað.

Þá get ég Kertasníkir vel við unað

með kertahrúguna alla

svo út á hlið ég halla

-sé ég kerti - fallegt kerti - jólakerti!

STEKKJASTAUR

Svakalega er ég orðinn langur!

Hann reynir líka á mig þessi gangur,

að bera búkinn efst á þessum fótum

- svona ljótum!

Tærnar á mér teygjast fram í spíss,

sem getur verið gott við klifur íss,

og skeggið hlýjar minni hvössu höku.

Þó vandast málið ef ég borða köku,

ef hrekkur mylsna oní lúsug hárin

þá segi ég í hálfum hljóðum - fjárinn!

Svo sting ég upp á því við gamla brýnið (hana Grýlu)

að þvo og snyrta á mér greppitrínið (ég í fílu!).


ÁTTUNDI, NÍUNDI OG TÍUNDI SVEINNINN KOMINN Í KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ

Já það er bara svaka rennerí í Kómedíuleikhúsið þessa dagana og langt fram yfir miðnætti meira að segja. Leikhúsið er bara að fyllast af jólasveinum. Dagurinn í dag hefur verið mjög kómískur og fjörugur því það þarf nú að huga að mörgu þegar sett er svið eitt stykki jólaleikrit með alíslenskum jólasveinum. Það þarf að búa til jólasveinahellinn og hann er nú heilt ævintýri út af fyrir sig einsog íbúar hellisins, ljós þurfa að skína og þar fylgist Kertasníkir vel með því þetta er nú hans sérgrein en í kvöld var hann loks ánægður enda ekki seinna vænna frumsýning eftir tæpa 14 klukkutíma. Eftir lokaæfingu í kvöld voru settar upphækkanir í húsinu svo allir sjái ævintýrið vel og tekur salurinn alls 60 manns í sæti. Já nú er Tjöruhúsið á Ísafirði sannarlega orðið Ævintýrahús Jólasveinanna. Sökum anna Kómedíuleikarans hafa vísu skrif verið lítil í dag og enn eigum við eftir marga jólasveina. Við höfum þetta því þrefalt að þessu sinni og kynnum nú til sögunnar hið frábæra jólasveinatríó: Bjúgnakræki, Gluggagægi og Kjötkrók.

BJÚGNAKRÆKIR

Halló bjúga, loksins náði'ég þér!

Ég skipa þér að koma heim með mér.

Dagana langa

bjúgu ég fanga.

Var búinn ' að fela

nú við þau kelaaaa..

Læt þau leika

um háls og á höndum,

rétt eins og kjötkveðjukall út í löndum.

Maginn á mér æpir hátt og snjallt:

,,með glöðu geði ég ég þetta allt"!

 GLUGGAGÆGIR

Hér ligg ég einn á glugga og er að glápa

inn til þín og augun í mér rápa

til og frá í augnatóftum mínum

er fylgist ég með ferðum þínum.

Í öllum bænum lát þér ekki bregða

þó þurfi' ég mér á þennan hátt að hegða,

en nafnið mitt er gamli Gluggagægir

að glápa gluggana - það nægir!

KJÖTKRÓKUR

Mér gefst nú sjaldan til þess tækifæri

að taka spor við gómsætt hangilæri,

sem einhver hefur hengt í hússins rjáfur,

þá nýti ég mér allar mínar gáfur

að hugsa' út leið og krækja mér í bita,

en reyni þó að láta engan vita

sem líður eins og mér, - með tóman maga

alla daga.


UPPSELT ALLA HELGINA Á JÓLASVEINA GRÝLUSYNI

Það er rífandi gangur í miðasölu á jólaleikinn Jólasveinar Grýlusynir og er uppselt á sýningar helgarinnar. En örvæntið ekki. Því leikurinn verður sýndur allar helgar í nóvember og desember. Næstu sýningar eru um næstu helgi, laugardaginn 24. nóvember og sunnudaginn 25. nóvember, og er miðasala á þær sýningar í fullum og mjög góðum gangi. Nú er bara að skella sér á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is og Panta miða. Jólasveinar Grýlusynir er bráðfjörugt jólaleikrit fyrir alla fjölskylduna eða frá 2. ja - 102 ára og allt þar á milli. Jólasveinar Grýlusynir kemur öllum í gott jólaskap og styttir jafnframt biðin fyrir hátíðina.

SJÖUNDI KÓMÍSKI SVEINNINN TEKUR DAGINN SNEMMA BARA MÆTTUR FYRIR HÁDEGI

Fyrsti jólasveinn dagsins tekur daginn snemma enda orðin svangur eftir nokkurra mánaða svefn. Það eru sennilega engar ýkjur að þessi sveinn beri þjóðlegasta nafnið af jólaköllunum þrettán, verðum við ekki að vera soldið þjóðleg í dag á tegi tungu vorar. Hann heitir Askasleikir og hefur heitið það síðustu 1000 ár eða svo og þó hlutirnir hafa nú soldið breyst á þessum tíma þá er ekkert verið að fárast við því. Hvað er eiginlega að því að heita Askasleikir? Svosem ekkert en reyndar er nú liðin ein öld eða svo síðan menn hættu að nota þetta fyrirbæri. Hinsvegar má benda á það að sennilega væri enn asnalegra að breyta nafni hans og færa nær nútímanum. Þá fengi hann kannski nafnið matardiskasleikir. Það er alltof langt og óþjált í munni og er ekki rétt að benda á það á Jónasardegi að halda beri í hin gömlu íslensku orð. Já þá er þetta alveg ljóst. Þessu verður ekki breytt úr þessu. Sveinninn heitir Askasleikir og er stolltur af því og svona kveður hann:

ASKASLEIKIR

Til eru furðulegustu leikir

það þekki ég sjálfur, Askasleikir.

Ég sit svo sæll á minni kistu

og reyni í fyrstu

að hreinsa innan askinn

áður en hann fer í vaskinn.

Ef ekki dugir fingur

þá er ég nokkuð slyngur

og teygi tungu endilanga

oní askinn, - restarnar að fanga.

Ammmmnamm

Ammmmnamm

Ammmmnamm


SJÖTTI JÓLASVEINN MÆTTUR Í KÓMEDÍULEIKHÚSIÐ RÉTT FYRIR MIÐNÆTTI

Hann lætur nú ekki mikið fyrir sér fara Kómíski jólasveinn sem læðist inní leikhúsið um miðnæturbil. Reyndar hefur þar líka að segja mikið fjör í leikhúsinu því frumsýning er á næsta leiti eða á laugardag og þá vill oft mikið ganga á. Æfingum er bara nýlokið í dag og allt er að komast í jólalegt leikhúsjólakökuform. Ljósin farin að skýna, jólasveinahellirinn mikið ævintýra undur enda unnið af listakonunni Marsibil G. Kristjánsdóttur sem er bara snillingur. Og já pæliði í því. Hún á afmæli í dag og samt var hún í leikhúsinu allan daginn. Já Kómedíuleikarinn er sannarlega vel giftur. En þó jólasveinn kvöldsins sé feimin og láti lítið á sér bera þá er þó eitt sem hafa skal gætur á og það er þvara þið vitið sleif. Já við erum að tala saman, þetta er sjálfur Þvörusleikir sem stendur sko ekkert alltaf einsog þvara einsog einhver sagði. Hér kemur Þvörusleikir:

ÞVÖRUSLEIKIR

Þvörusleikir er nafnið mitt.

Ég dunda mér reyndar við þetta og hitt.

En mest þykir mér þó gaman

þegar margir koma saman.

Og elda sér mat í potti,

þá fylgist ég með, - og glotti.

Ég veit þá að mín bíður þvara.

Sem ég fæ að sleikja, bara

af því ég heiti Þvörusleikir.

P.s. svo vil ég bara minna ykkur á að panta miða á Jólasveina Grýlusyni. Kikkið á www.komedia.is


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband