VESTFIRSK JÓLALJÓÐ

Kómedíuleikarinn og Jóna Símonía Bjarnadóttir verða með jólaþátt á bestu útvarpsstöðinni Rás eitt um hátíðirnar. Þar munu þau fjalla um jólin fyrir vestan og ýmsa jólasiði. Einnig verður sagt frá jólum nokkurra vestfirskra listamanna og flutt jólaljóð eftir vestfirsk skáld. Næstu daga verða birt hér á Kómíska blogginu jólaljóð úr smiðju vestfirskra skálda. Við hefjum leikinn á ljóðinu Jól eftir meistara Stein Steinarr:

Jól  

Sjá, ennþá  rís  stjarnan, sem brennur björtust og mildust

á bládjúpum miðsvetrarhimni hins snæþakta lands.

Sjá, ennþá nálgast sú hátíð, sem hjartanu er skyldust

Og huggar með fagnaðarsöngvum hvert angur manns. 

Og innan skamms byrjar kappát í koti og höllu,

og klukknahringing og messur og bænargjörð,

það er kannski heimskast og andstyggilegast af öllu,

sem upp var fundið á þessari voluðu jörð. 

Og ger þú nú snjallræði nokkurt, svo fólkið finni

Í fordæmi þínu hygginn og slóttugan mann:

Með kurteisum svip skaltu kveikja í stofunni þinni.

Og kauptu svo sóknarprestinn og éttu hann.

 


LÍFÆÐIN VESTFIRSK ÚTVARPSSTÖÐ Í LOFTIÐ

Það er margt hugsjónafólkið sem byggir Vestfirðina enda hefur einstaklings framtakið alltaf verið stór þáttur í lista- og menningarlífi á Vestfjörðum. Nú hefur einn hugsjónasonur Vestfjarða, Þórður Vagnsson, opnað eitt stykki útvarpsstöð í Bolungarvík. Stöðin nefnist Lífæðin og verður í loftinu nú í jólamánuðinum. Hér er á ferðinni hreint og klárt einstaklingsverkefni sem er staðið að með miklum bravúr einsog þeirra Vagnsbarna er háttur. Vonandi munu sem flestir stylla á þessa nýju vestfirsku stöð og óskandi er að fyrirtæki og stofnanir sjái hag sinn í að styrkja verkefnið með einhverjum monnípeningum. Það kostar ábyggilega slatta af aurum að reka svona apparat leigja sendi og borga stefgjöld ofl. Á Ísafirði næst Lífæðin á FM 101,1 og í Bolungarvík á FM 92,7.

VERSLUNIN SPÚTNIK ÞJÓNAR EKKI LANDSBYGGÐINNI

Það er nú ekkert auðvelt má að versla sér buxur nú til dags sérstaklega ef mann vantar sérstakar buxur. Dóttur Kómedíuleikarans langaði í buxur og einmitt þessar sérstöku og í ljós kom að þessar einstöku buxur fást einungis í verluninni Spútnik á Laugavegi. Við sláum á þráðinn og einhver gellan í sjoppunni svarar. Jú, jú þessar buxur eru til. Frábært ég ætla að fá þær sendar hingað á Ísafjörð takk. Því miður við sendum ekki út á land. Löng þöng í símanaum, ég kíkti á dagatalið jú það er árið 2007 núna. Spurði síðan þessari sígildu spurningu: Ha, hvað sagðir þú? Við sendum ekki útá land. Og þar með lauk símtalinu. Kómedíuleikarinn verður ekki oft orðlaus en er það núna ég meina hvurslags er þetta eiginlega. Er svona erfitt að henda buxum í umslag og rölta með það í pósthúsið. Og að sjálfsögðu láta viðtakenda borga sendingarkostnaði og sjoppan tapar engu en stúlkan sem rölti með pakkann getur vel við unað að hafa fengið góðan göngutúr og jafnvel fengið sér smók á leiðinni ef hún reykir allaveg einn taktu með kaffi. En nei Verslunin Spútnik sendir ekki út á land og þannig er það bara og þess vegna fannst mér rétt að koma því á framfæri svo hinir tveir sem búa á landsbyggðinni geti sparað sér símtalið í þessa verslun og verslað sínar buxur annarsstaðar þar sem enn er landsbyggðaþjónusta. Reyndar skilst mér að Verslunin Spútnik sé ekki sú eina sem sendir ekki út á land. Það er leitt ef svo er því nú fer verslunum fækkandi á landsbyggðinni en ef þetta heldur áfram verður það þá kannski til þess að verslunin nái sér aftur á strik á landsbyggðinni enda alltaf best að versla í heimabyggð.

GJAFABRÉF Á JÓLASVEINA GRÝLUSYNI

Jólin koma. Jólin koma. Kómedíuleikhúsið hefur hafið sölu á gjafabréfum á jólaleikritið vinsæla Jólasveinar Grýlusynir. Gjafabréfið á Grýlusynina er tilvalin gjöf í jólapakkann eða fyrir jólasveininn til að setja í skóinn eða bara til að stytta biðina fyrir jólin. Gjafabréf fyrir einn, tvo, þrjá, fjóra, tíu - þú ræður fjöldanum. Sendu okkur tölvupóst komedia@komedia.is og pantaðu gjafabréf á Jólasveina Grýlusyni. Það er góð gjóf - það er Kómísk jólagjöf.

komiskur jolasveinn


JÓLAGJÖFIN Í ÁR ER HLJÓÐBÓK

Hljóðbókin hefur verið að festa sig vel í sessi hér á landi síðastliðin ár. Enda er hljóðbókin frábær kostur og alltaf gaman að láta lesa fyrir sig. Það er líka hægt að taka hljóðbókina með sér hvert sem hvort heldur í sumarbústaðinn eða í bílinn. Hljóðbókin léttir líka vinnuna eða heimlisstörfin t.d. við uppvaskið. Kómedíuleikhúsið hefur verið að hasla sér völl í hljóðbókaútgáfu og hefur nú gefið út tvær hljóðbækur á þessu ári. Í vor gaf Kómedía út hljóðbókina Þjóðsögur úr Vesturbyggð og nýjasta afurðinn er hljóðbókin Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ. Kómísku hljóðbækurnar fást í verslun leikhússins á heimsíðunni  www.komedia.is  og verðið er alveg Kómískt eða aðeins 1.999.- kr. stykkið.

Kómedíuleikhúsið stefnir að því að gefa út tvær hljóðbækur á komandi ári. Hverjar þær verða er ekki hægt að upplýsa alveg strax en þið verðið fyrst til að vita af því.

 


TIL HAMINGJU HRAUNARAR UM LAND ALLT

Frábært strákar til hamingju með þetta áttuð þetta alveg örugglega skilið og verið langbestir enda trygg vestfirsk tenging. Svo er bara að rokka áfram og muna svo að skreppa stundum á ísó og spila.
mbl.is Hraun komin í 5 sveita úrslit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

VANTAR BÍLFAR FYRIR LISTAVERK Á ÖKULEÐINNI ÍSÓ - RVK

Ert þú á leiðinni suður á morgun eða hinn frá ísó til rvk ef svo er ertu þá til í að taka smá listaverkapakka fyrir Kómedíuleikarann. Tekur ekki mikið pláss en vil helst ekki senda verkin í flugi en þolir samt alveg vestfirska vegi. Ef þú ert á leðinni í kaupstaðinn eða veist um einhvern sem er á leiðinni þætti mér vænt ef þú hefðir samband. Í þakkarskyni færðu gott andlegt fóður í bílinn hljóðbókina Þjóðsögur úr Vesturbyggð sem léttir aksturinn án þess þó að trufla. Hlakka til að heyra frá þér.


EKKI HÆTTA THINGEYRI PUNKTUR IS

Nú þurfa einhverjir öflugir hugsjónarmenn á Þingeyri að stökkva til og bjarga málunum. Í morgun var nefnilega frétt um það á þeim ágæta vef www.thingeyri.is að þeir sem hafa staðið af vefnum ætli nú að láta staðar numið. Það væri algjör synd ef það gerðis því vefurinn er fjölsóttur nokkur hundruð heimsóknir á dag og mikilvægt í nútíma samfélagi að hafa einn stað þar sem finna má upplýsingar um það sem er um að vera í þorpinu hverju sinni. Auðvitað veit maður að það eru engir monnípeningar í þessu og sennilega hafa frumherjar vefsins á Þingeyri borgað með þessu þau fimm ár sem vefurinn hefur verið í loftinu. Það er fullt af hugsjónafólki á Þingeyri og nú er bara að vona að þeir sameinist um að halda áfram með Þingeyrarvefinn og halda þar með áfram að poppa upp mannlífið á Þingeyri með jafnöflugum hætti og frumherjarnir á eyrinni hafa gert síðustu fimm ár.


JÓLSTEMNING Á ÍSÓ Á MORGUN

Það verður sannkölluð jólastemning á Ísó á morgun. Kómedíuleikhúsið sýnir jólaleikritið vinsæla Jólasveinar Grýlusynir í Tjöruhúsinu kl.14.00. Þetta er fimmta sýning á leiknum sem hefur vakið mikla athygli vestra enda er hér á ferðinni vandað alíslenskt jólaleikrit um gömlu jólasveinana. Að lokinni sýningu er að vanda boðið uppá heitt súkkulaði og heimabakaðar smákökur. Klukkutíma eftir sýningu eða kl.16. verður síðan kveikt á jólatrénu á Ísafirði sem er staðsett á Silfurtorgi að vanda. Þar verður boðið uppá vandaða jóladagskrá söng og sprell m.a. verður sýnt brot úr Jólasveinar Grýlusynir. Að sjálfsögðu munu svo jólasveinar mæta á staðinn en það eru þeir Hurðaskellir og Stúfur en þeir hafa herjað á Vestfirði síðastliðin ár einsog þeim einum er lagið.

komiskir jolasveinar Askasleikir, Bjúgnakrækir og unglingspilturinn í Jólasveinar Grýlusynir.

Mynd: Halldór Sveinbjörnsson.


NÝ HLJÓÐBÓK VÆNTANLEG - ÞJÓÐSÖGUR ÚR ÍSAFJARÐARBÆ

Kómedíuleikhúsið vinnur nú að útgáfu hljóðbókarinnar Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ og er hún væntanleg á markaðinn næstu daga. Ísafjarðarbær er mikið og stórt sagnasvæði sem nær allt frá Dýrafirði til Hornstranda. Á þessari hljóðbók eru 33 þjóðsögur sem er skipt niður í fimm flokka: Álfa- og huldufólkssögur, Draugasögur, Galdrasögur, Skrímslasögur og Tröllasögur. Sögurnar eru sóttar í hin ýmsu þjóðsagnasöfn einsog safn Jóns Árnasonar og Arngríms Fr. Bjarnasonar. Það er Kómedíuleikarinn sem flytur sögurnar. Hljóðbókin er nú í fjölföldun og ætti að vera komin á markaðinn í byrjun desember. Þetta er önnur hljóðbókin sem Kómedíuleikhúsið gefur út en í vor sendi Kómedía frá sér bókina Þjóðsögur úr Vesturbyggð. Hljóðbækurnar fást í vefverslun Kómedíuleikhússins www.komedia.is og er þegar byrjað að taka við pöntunum á nýju hljóðbókinni, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ. Einnig eru hljóðbækurnar til sölu á Hótel Ísafirði, í versluninni Orkustein á Ísafirði og Veitingastofunni Vegamót á Bíldudal.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband