Lottó fyrir listina

Intresant hugmynd hjá einum leikara Austurvallaleikhússins að hluti af hagnaði Lottó monningana renni til lista á Íslandi. Viðkomandi Austurvallaleikari nefndi þetta á hinum einstöku DV menningarverðlaunum sem voru afhend um daginn. Ég er aldrei þessu vant hlyntur þessari hugmynd Austurvallaleikarans. Skilst að þetta sé gert víðar gott ef ekki í Bretlandi þar sem hluti Lottó monningana renna til listagyðjunnar. Vissulega og skiljanlega eru íþróttakappar og konur ekkert voða spennt fyrir þessu sem er alveg skiljanlegt. Ef maður hefur eitthvað þá vill maður halda því og ekkert minna. En það er nú samt ekkert hollt að hafa hlutina alveg eins til eilífðar þekkjum það að ef einhver kemst á spenann þá vilja hlutirnar drabbast niður og verða bara að einhverju apparati þar sem upphaflega hugmyndin og hugsjónin fjarar út með árunum. Einn sport kappinn benti nú á það í Sjónvarpinu í gær að íþróttir væru líka menning og listir, gott og vel, stígum þá skrefið til fulls og hleypum öllum listum inní lottóið. Ef allt spilast einsog ráðamenn Austurvallaleikhússins vinna þessa dagana, að hlusta ekki á fólkið heldur bara gera það sem þeir vilja, þá verður þessi breyting gerð á Lottóinu - þannig að, já, það eru ekki allir hlutir alslæmir þó þeir séu reyndar mjög slæmir núna í Austurvallaeinleikhúsinu.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eru þeir ekki bara að hugsa um að fá úthlutað sjálfir sem Alþingisleikhúsið ?

Annars flott hjá ykkur og vonandi hefur ferðin gengið vel. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.3.2011 kl. 15:20

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

jú auðvitað er það pælingin hjá þeim gætu þá ráðið okkur í hinu leikhúsinu til að vera með námskeið og svoleiðis hjá sér

já takk Reykjavíkurferðin gekk vel sýndum í hinum frábæra Slippsal Valgeirs Guðjónssonar og frú

Elfar Logi Hannesson, 8.3.2011 kl. 15:31

3 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

einn kollegi í íþróttunum greip mig á götu áðan og hann er nú ekki vanur að kalla allt ömmu sína, en er bara nokk sammála að óhætt sé að skoða vel breytingu sem þessa á Lóttóinu

Elfar Logi Hannesson, 9.3.2011 kl. 16:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband