NEI NEI ÞETTA ERU EKKERT ASNAR....ÖLL GAGNRÝNI Á RÉTT Á SÉR
4.1.2008 | 22:31
Já það er skritin þessi ákvörðun í Borgarleikhússtjóra að neita gagnrýnanda um frímiða á frums. Auðvitað erum við í listinni alltaf viðkvæm fyrir gagnrýni en við þurfum samt á henni að halda svo er það bara hvers og eins að meta hvað hann tekur mark á og einnig á hverjum hann tekur mark á. Einhverntíman hefur nú verið sagt að öll umræða sé af hinu góða hvort heldur hún sé slæm eða góð. Ef við skoðum fjölmiðlana þá fá nú neikvæðu fréttirnar miklu meira rými en þær jákvæðu enda virðast þær negatívu vera vinsælli hjá lesendum eða hlustendum eða gónendum. Og í leikhúsinu þurfum við einmitt á umræðu og umfjöllun að halda bara einfaldlega til að láta af okkur vita. Kómedía hefur tvívegis lent í skondnum rýnendum og það kómíska við það var að báðir dómarnir voru mjög svipaðir. Það er að segja að þeir, já þetta var sitthvor gangrýnandinn, voru búnir að móta sér ákveðna hugmynd um verkið áður en þeir sáu það. Og þegar svo er þa boðar það nú ekki gott einsog kom í ljós í báðum þessum dæmum. Enda er þetta algjör fyrra að mæta í leikhús og vera búinn að ákveða hvernig sýningin á að vera. Má segja að þeir hafi nú ekki kannski verið þeir hæfustu í þetta djobb enda er annar þeirra hættur en hinn er enn að semja handritin á óséðum sýningum. Þrátt fyrir þessa skrítnu áráttu þessara rýnara dettur Kómedíu ekki í hug að bjóða þeim ekki í leikhúsið. Því þegar á öllu er á botnin hvolt þá eru það áhorfendur sem eru hinn stóri dómur og svona uppá grín þá má geta þess að báðar þessar sýningar gengu fínt og önnur þeirra er meira að segja enn í gangi. Allir í leikhús og ekki liggja á þinni skoðun því ef við fáum ekkert að heyra þá náum við ekki lengra.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Já þetta er mjög áhugavert mál. Málið er nottla það að það eru svo mörg leikfélög á litlu svæði í Reykjavík og það eru allir að berjast um sama fólkið. Þegar sýningar eru að fá slæma dóma í Reykjavík virðist fólk, sem les gagngrýnina taka því mjög alvarlega, lætur gagngrýnendur taka ákvörðun fyrir sig og mætir þar af leiðandi ekki á sýningarnir því það er fullt annað í boði. Þetta er nottla sorglegt...
Marta, 6.1.2008 kl. 23:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.