KÓMEDÍULEIKARINN TILNEFNDUR TIL MENNINGARVERÐLAUNA DV

Kómedíuleikarinn, Elfar Logi Hannesson, hefur verið tilnefndur til Menningarverðlauna DV. Tilkynnt var í DV í gær hverjir væru tilnefndir til þessara merku menningarverðlauna á Íslandi en þetta er í 29 sinn sem verðlaunin verða veitt. Verðlaununum er skipt niður í sjö flokka og að sjálfsögðu er sá Kómíski í leiklistar katakoríunni. Tilnefninguna hlýtur Kómedíuleikarinn vegna Act alone leiklistarhátíðarinnar. Um tilnefninguna segir valnefnd verðlaunanna: ,,Einleikjahátíðin Act alone, sem er eina reglubundna leiklistarhátíðin á Íslandi, hefur verið haldin síðan 2004 og er að langmestu leyti framtak eins manns, Elfars Loga Hannessonar. Þar hefur komið fram fjöldi einleikara, bæði innlendra og erlendra, með verk af mjög ólíku tagi. Hátíðin hefur aukið á fjölbreytni íslensks leiklistarlandslags og er einnig mikilsvert framtak til menningarlífs á Vestfjörðum." Menningarverðlaun DV verða afhent 5. mars en rétt er að benda öllu áhugafólki um menningu og listir að lesendur DV blaðsins og vefsins geta einnig kosið sitt uppáhald af þeim sem tilnefndir eru. Ef þið eruð í vanda með að velja úr þeim flotta flokki listamanna sem tilnefndir eru þá má alveg setja X við þann Kómíska. Allir að kikka á www.dv.is

Act alone gengiKómedíuleikarinn ásamt Eric Bogosian og öðrum erlendum gestum á Act alone 2006.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Búin að kjósa.  Og ég hvet fólk til að taka þátt og fá okkar mann inn, Act alone er mjög flott framtak og Elvar Logi á heiður skilinn fyrir að koma því á koppinn.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.2.2008 kl. 17:54

2 Smámynd: Ársæll Níelsson

Kaus að sjálfsögðu Kómedíukallinn.
Þetta vekur vonandi einhverja peningamenn upp á djúpum svefni þannig að aukið fjármagn fáist fyrir komandi hátíðir.

Það verður gaman að segja Ole frá þessu á morgun, hann verður eflaust stoltur af ykkur, þér og  Ingimari frelsara.

Ársæll Níelsson, 28.2.2008 kl. 19:02

3 identicon

Takk bæði tvö - já allir að skella sér á www.dv.is og kjósa sinn uppáhalds listamann, minni á Kómedíuleikarann sem er þar á meðal

Elfar Logi Hannesson (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 22:34

4 Smámynd: Marsibil G Kristjánsdóttir

Ég vel minn mann og engann annann, og er búin að kjósa auðvitað!

Marsibil G Kristjánsdóttir, 1.3.2008 kl. 00:03

5 identicon

Takk já það er ekki að spyrja að ykkur frænkunum - úrvals ætt það segi ég satt

Elfar Logi Hannesson (IP-tala skráð) 1.3.2008 kl. 00:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband