AUKASÝNINGAR Á AUKAVINNU Á ÍSÓ

Alþýðlega leik- og söngskemmtunin Við heimtum aukavinnu hefur sannarlega slegið í gegn. Tvær sýningar voru núna um helgina og var uppselt á báðar sýningarnar þó bætt hefði verið við fleiri sætum en um helgina sáu um 300 manns sýninguna.Það hefur því verið ákveðið að hafa tvær aukasýningar um næstu helgi. Sýnt verður á laugardag 21. febrúar og verður sérstök fjölskyldusýning sem hefst kl.17. En gaman er að segja frá því að mikið Jónasar og Jón Múla æði er nú í Grunnskólanum á Ísafirði en um daginn sáu þau brot úr sýningunni og höfðu svo gaman af að nú er Riggarobb og fleiri slagarar sungnir í öllum frímínútum og nestistímum. Það er því tilvalið að fjölskyldan skelli sér öll saman í leikhús um helgina. Síðar um kvöldið eða kl.21 verður svo önnur sýning á Við heimtum aukavinnu! Miðasala á aukasýningarnar er hafinn og nú er bara að slá inn númerið 618 8269 og panta sér miða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flott hjá ykkur, það er alveg sama hvað þú tekur þér fyrir hendur frændi þetta verða allt stórsýningar hjá þér :-)  manni langar bara til að skella sér á sýningu hjá ykkur  spurning um að fara bara hringinn með stykkið :-)

knús á dömurnar þínar

kv magga frænka

frænka á akó (IP-tala skráð) 15.2.2009 kl. 19:34

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Takk Magga frænka það er bara svo gott að skapa hérna og frábært fólk. Væri ekki bara sniðugt að skella sér á Skíðaviku þá verður sýning og svo fullt af menningu. Reyndar eru komnar hugmyndir um að fara á smá rúnt með Aukavinnuna skella sér jafnvel á Bíldó og svona. Sjáum hvað gerist. Bestu kveðjur norður

Elfar Logi Hannesson, 16.2.2009 kl. 09:11

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þetta var dásamleg sýning, ég held að ég hafi ekki skemmt mér svona vel í áraraðir.  Allt small vel saman, þú ert frábær Elvar Logi ég mæli 100% með þessari sýningu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 20.2.2009 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband