HEILSUGÆSLAN UM HELGINA

Kómedíuleikhúsið verður með þrjár aukasýningar á hápólitíska gamanleiknum Heilsugæslan í Arnardal um helgina. Nú þegar er orðið uppselt á miðnætursýninguna á föstudag 16. október en einnig verða tvær sýningar á sunnudag 18. október kl.15 og kl.20.30. Miðasala á þær sýningar er í fullum gangi núna í síma: 860 6062. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið arnardalur@arnardalur.is
Heilsugæslan verður einnig sýnd í Hvíta húsinu í Bolungarvík á laugardag, 17. október, kl.16. Miðasala á staðnum og opnar kl.15.30. Miðaverð á allar sýningar er 1.900.- krónur.
Íslendingar hafa löngum státað af besta heilbrigðiskerfi í heimi. Við hrósum okkur yfir háum meðalaldri, þjónustu í hæsta gæðaflokki og frábærum læknum. En er kerfið eins gott og af er látið? Er það hugsanlega farið að vinna gegn tilgangi sínum? Er aukinni eftirspurn sjúkdóma svarað með meira framboði? Hvaða tilgangi þjónar góð heilsa? Metum við líf í magni eða gæðum?
Leikritið, Heilsugæslan, er samið af lækni, Lýð Árnasyni, og gefur áhorfandanum sýn inn í þetta völundarhús og það sem býr að tjaldabaki.
Heilsugæslan er gamanleikur og öll hlutverk í höndum tveggja leikara, þeirra Elfars Loga Hannessonar og Margrétar Sverrisdóttur.
Heilsugæslan er hápólitískt leikrit og umfjöllunarefnið brennandi á íslenzku þjóðfélagi, ekki sízt núna, í skugga niðurskurðar.
Heilsugæslan fyrir alla!
Menningarráð Vestfjarða stykrir Heilsugæsluna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband