UPPSELT Á TVEGGJA ÞJÓN Í KVÖLD
20.3.2008 | 18:34
Leikfélag Siglufjarðar sýnir gamanleikinn vinsæla Tveggja þjón í leikstjórn Kómedíuleikarans í Bíó Café í kvöld. Og það er bara UPPSELT. Ekki örvænta því næsta sýning er á laugardag í Félagsheimilinu á Ólafsfirði. Tveggja þjónn er bráðfjörugur gamanleikur eftir ítalska leikskáldið Carlo Goldoni. Leikurinn hefur nokkrum sinnum verið settur á svið hér á landi en Leikfélag Reykjavíkur var fyrst til að flytja leikinn fyrir íslenska gónendur eitthvað um 1960 og eitthvað. Þar var Arnar Jónsson í aðalhlutverki sem þjónninn Arlechínó sem nefnist á Siglufirði Eldibrandur í uppfærslu Leikfélagsins þar í bæ.
BILLUSTOFA OPNAR KLUKKAN 15 Í DAG ALLIR VELKOMNIR
20.3.2008 | 14:42
Kómedíufrúin, Marsibil G. Kristjánsdóttir, eða Billa opnar vinnustofu sína í dag kl.15.00. Billustofa verður opin næstu daga frá kl.15 - 18. Kaffi á könnunni. Fullt af glæsilegum listaverkum s.s. pennateikningar, málverk, jólasveinar á rekavið, tækifæriskort ofl ofl. Einnig verða hljóðbækur Kómedíuleikhússins til sölu ásamt öðrum varningi Kómedíu s.s. bókinni Íslenskir einleikir og Steinn Steinarr á DVD.
Kómedíufrúin við eitt verka sinna
Pennateiknignar Billu hafa slegið í gegn og eru nokkrar teikningar til sölu á Billustofu núna um helgina
KÓMÍSKIR PÁSKAR
19.3.2008 | 16:34
Það verður mikið um að vera hjá Kómedíuleikhúsinu um páskana. Einsog allir vita þá er hin árlega Skíðavika á Ísó haldin um páska er einmitt verið að setja hana núna á Silfurtorgi. Kómedía tekur að sjálfsögðu virkan þátt í festivalinu og verður með sannkallaða leikhúspáska í Tjöruhúsinu. Sýndir verða tveir vinsælir leikir úr smiðju leikhússins. Leikhúsveislan hefst á föstudaginn langa þegar Dimmalimm verður á fjölunum í Tjörunni í Neðsta og hefst sýningin kl.14. Dimmalimm hefur verið sýnt um land allt og líka í úttlöndum enda er hér á ferðinni vönduð sýning fyrir börn á öllum aldri. En á þessum langa föstudegi verður Gísli Súrsson líka á fjölunum og hefst sú sýning kl.16. Gísli er án efa vinsælasti leikur Kómedíuleikhússins og hefur tvívegis verið verðlaunaður á leiklistarhátíðum erlendis og eru sýningar að nálgast 170 sem er náttúrulega alveg Kómískt met. Önnur sýning á Dimmalimm verður á páskadag kl.14. Miðasla á leikhúspáska Kómedíu eru á heimasíðunni www.komedia.is Einnig er gaman að geta þess að Kómedíuleikarinn verður með sérstakan páskaútvarpsþátt á Rás eitt á skírdag kl.14.00. Þátturinn nefnist Hátíð hátíðanna, afhverju höldum við páska? og er í umsjón þess Kómíska og Jónu Símoníu Bjarnadóttur. Þau hafa unnið talsvert saman að undanförnu gerðu t.d. jólaþátt fyrir Gufuna fyrir síðustu hátíð og hafa einnig staðið fyrir mánaðarlegum vestfirskum húslestri í Safnahúsinu á Ísó þar sem tekin eru fyrir skáld að vestan fjallað og lesið úr verkum þeirra. Þetta er ekki allt. Því Kómedíufrúin, Billa, verður einnig með vinnustofu sína, sem hún kallar Billustofu, opna um páskana. Það verður því ekki bara rokk og ról á ísó um Páskana.
BILLUSTOFA UM PÁSKANA
19.3.2008 | 12:07
ÞREFALDUR TVEGGJA ÞJÓNN Í FJALLABYGGÐ
18.3.2008 | 15:03
DR SEUSS ALLTAF GÓÐUR
18.3.2008 | 11:44
Rithöfundurinn Dr Seuss var bara snillingur ég segi það satt. Ritaði alveg geggjaðar sögur, Kötturinn með höttinn og Þegar Trölli stal jólunum þeirra þekktastar og nú gerir fíllinn Horton allt vitlaust. Samt skrítið hve lítið hefur verið kvikmyndað af sögum þessa merka barnabókahöfundar og hvað þá heldur hve lítið hefur verið fært upp af Seuss verkum á leiksviðinu. Rámar reyndar í að fyrir síðustu jól hafi verið gerður ágætlega lukkaður Trölla músíkal eða var það kannski í fyrra. Kómedíuleikarinn hefur lengi haft á sínum einleikjaóskalista að setja upp Köttinn með höttinn. Ætti hann að kíla á það núna?
![]() |
Fornöldin og fíllinn börðust um efsta sætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
TIL HAMINGJU BJARNI
17.3.2008 | 16:45
![]() |
Tilnefndur til norrænu leikskáldaverðlaunanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ TMM
16.3.2008 | 15:10
Hið stórmerka menningartímarit Tímarit Máls og Menningar eða TMM á sjötíu ára útgáfuafmæli núna í mars. Það verður að segjast einsog er að þetta er án efa eitt allra merkasta tímarit Íslandssögunnar. Vandað rit í alla staði og mikið í lagt. Núverandi ritstýra TMM er Silja Aðalsteinsdóttir sem hefur haldið um stjórnartaumana síðan 2004 með miklum bravúr. TMM er líka með heimasíðu sem er í dag besta íslenska netmenningarsíðan að mati Kómedíuleikarans. Kikkið bara á það og sannfærist
Til hamingju Silja og allir unnendur TMM
Eftir órfáa daga hefst hin árlega Skíðavika á Ísafirði. Gleðin hefst á Silfurtorgi á Ísó miðvikudaginn 19.mars þegar hátíðin verður formlega sett. Og þar með er gleðin hafin og það væri alltoflangt mál að fara að telja upp þá fjölda atburða sem í boði verða á Skíðavikunni í ár. Hæst ber að sjálfsögðu rokkhátíðin Aldrei fór ég suður sem verður nú haldin fimmta árið í röð. Hátíðin hefur slegið í gegn svo um munar og rúsínan í pylsuendanum það er frítt inn en það er sérstakur ísfirskur siður að hafa frían aðgang a hátíðum samanber Act alone leiklistarhátíðina, já já maður kemur nú alltaf sínu að. Kómedíuleikhúsið tekur að sjálfsögðu þátt í Skíðavikunni og býður uppá Leikhúspáska á Ísó hvorki meira né minna. Leikurinn hefst á föstudaginn langa með sýningu á einleiknum Dimmalimm kl.14. Sýnt er í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað á sama stað og Kómedían sýndi hinn vinsæla Jólasveina leik fyrir síðustu jól. En Dimmalimm verður ekki einsömul lengi því kl.16.00 á föstudaginn langa verður útlaginn Gísli Súrsson sýndur í Tjöruhúsinu og gaman að geta þess að þetta er 167 sýning á Gísla Súra. Þannig að hann er semsagt rétt að byrja. Á Páskadag verður Dimmalimm aftur í Tjöruhúsinu á sama tíma kl.14.00. Miðasala er á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is
Nú svona til að kikka aðeins á dagskrá Skíðaviku 2008 þá verður m.a. meistari Siggi Björns á besta bar landsins þið vitið Vagninum á Flateyri, Davíð Örn sýnir í Slunkaríki, leikfélag MÍ sýnir Rocky Horror, Bermuda verður með útgáfutónleika og Heimsins ljós í Ísafjarðarkirkju. Síðast en ekki síst verður Kómedíufrúin með opna vinnustofu sem hún nefnir einfaldalega Billustofu nema hvað. Þar gefst gestum kostur á að kikka á verk hennar og jafnvel kaupa líka. Dagskrá Skíðavikunnar er á heimasíðu festivalsins
ÉG MÆTI
15.3.2008 | 17:22
![]() |
Bob Dylan heldur tónleika á Íslandi í sumar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |