KÓMEDÍULEIKARINN Í BÍÓ
14.3.2008 | 16:36
KÓMEDÍUBRÓÐIRINN MEÐ HEIMASÍÐU
13.3.2008 | 13:48
Kómedíubróðirinn, Þórarinn Hannesson en er á Kómísku alltaf kallaður Cábojinn, sem býr á Sigló er með flotta heimasíðu sem ég hvet ykkur til að kikka á hér er slóðin
Þann 26 mars hefur síða Cábojsins verið ár í loftinu og hann setur markið á að þá séu heimsóknir orðnar 7000 vantar sodlið uppá það þegar þetta er párað segir mælirinn 6542. Væri nú gaman að ná þessu því svo skemmtilega vill til að happatala hans er einmitt sjö, hann spilaði alltaf í treyju númer sjö í boltanum, hélt með Kevin Keeagan og síðan Kenny Daglish sem spiluðu einmitt í treyju númer 7. Hinn síðari ár hefur Kómedíubróðirinn hins vegar haslað sér völl sem trúbadúr með góðum árangri og hefur gefið út eina þrjá geisladiska og er hægt að panta þá á margnefndri heimasíðu kappans. Endilega kikkið á Cábojinn á Sigló.
STÓRTÍÐINDI
12.3.2008 | 22:36
![]() |
RÚV semur við félög leikara og tónlistarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
FRÁBÆR HUGMYND - MEIRA SVONA
12.3.2008 | 12:17
![]() |
Frystihúsi breytt í vinnustofur listafólks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
OH EF ÉG ÆTTI BARA 8 MILLUR DALA
11.3.2008 | 13:16
![]() |
Verk eftir Pollock selt á 8 milljónir dala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
SÓL Á ÍSÓ
11.3.2008 | 12:34
Verð bara að láta ykkur vita að því ekki að þetta séu eitthvað nýjar fréttir en það er sól og geggjað veður á ísó núna í dag. Í gær var líka rosa flott veður því ísóveðrið er alltaf fjölbreytt og listrænt. Rétt samt að taka það fram líka að það er góður skíðasnjór og við stefnum að því að halda honum aðeins lengur þrátt fyrir allt sólskinið því í næstu viku hefst hin árlega og stórmerkilega Skíðavika hér á Ísó. Síðustu ár hefur verið alltof mikið sólskin og því ekki hægt að skíða á Skiðaviku en núna verður það sko bæði sólskin og skíðasnjór. Dagskrá Síðavikunnar er að vanda mjög glæsileg og tekur Kómedíuleikhúsið að sjálfsögðu þátt í gleðinni. Má gjarnan nefna þetta Leikhúspáska á Ísó því alls verða þrjár Kómíska sýningar en sýnt verður í Tjöruhúsinu í Neðstakaupstað. Á föstudaginn langa verður Dimmalimm sýnt kl. 14. og tveimur tímum síðar stígur útlaginn Gísli Súrsson á sviðið. Dimmalimm verður sýnt aftur á fjölunum á Páskadag kl.14. Miðasala hafin á heimasíðu Kómedíu www.komedia.is Annars bara allt í Kómískt gott að frétta í gær var Kómedíuleikarinn í stúdíó RÚV á Ísó við upptökur á nýjum útvarpsþætti fyrir Rás eitt sem hann gerir í samvinnu við Jónu Símoníu Bjarnadóttur. Þátturinn heitir Hátíð hátíðanna og verður fluttur á Skírdag kl.14.00 á Rás Eitt.
Gísli Súri verður á Skíðaviku á Ísó
JESÚ ROKK VAR BARA GOTT ROKK EN EKKERT LEIKHÚS
10.3.2008 | 11:55
Kómedíuleikarinn skellti sér á Jesús Krist ofurstjörnu í Borgó um daginn. Flott hljómsveit, góður söngur en ekkert leikhús. Samt flottir tónleikar og mætti alveg auglýsa sjóvið þannig svona til að kalla hlutina réttum nöfnum. Á örugglega eftir að ganga lengi sérstaklega ef þessi breyting verður gerð.
KÓMEDÍULEIKARINN FÉKK MENNINGARVERÐLAUN DV
5.3.2008 | 20:53
5 mars er sannarlega gleðilegur dagur fyrir Kómedíuleikarann. Fyrst ber að nefna að yngsta prinsessan hans, Alda Iðunn, á afmæli í dag er sko orðin 6 ára. Alvöru prinsessa. Og svo voru líka Menningarverðlaun DV afhent núna seinnipartinn í dag. Afhendingin fór fram á Hótel Borg sem verður nú að segjast einsog er að er einhvernvegin voða menningarlegur staður, einhver svona sjarmi sem ekki er hægt að lýsa. Nema hvað - Kómedíuleikarinn fékk Menningarverðlaun DV í netkosningu sem efnt var til. Það verður nú að segjast einsog er að þetta kom Kómedíuleikaranum alveg í opna skjöldu hann var nærri búinn að missa Spriteglasið í gólfið þegar þetta var tilkynnt. Það er alveg frábært að fá þessi Netmenningarverðlaunfrá landsmönnum og greinilegt að fólk fílar Act alone. Þúsund þakkir til allra. Nú höldum við bara áfram að byggja upp Act alone og gerum hana að enn stærri hátíð. Hlakka til að sjá ykkur á Act alone 2008 sem verður haldin dagana 2. - 6. júlí. Þið eruð best.
VAR ROOSEVELT GÍSLI SÚRSSON Í FYRRA LÍFI
4.3.2008 | 17:32
Í gær greindum við frá skondnu atviki í tengslum við Gísla Súra í Keflavík en það gerðist fleira á þeim góða stað. Þegar búið var að ganga frá leikmyndinni var boðið uppá kaffi á kaffistofu skólans. Mikið er nú kaffisopinn alltaf góður og það verð ég að segja að Bragakaffi er.....nei nei höldum heldur áfram með söguna. Í mörgum óspurðum fréttum sem þar voru sagðar voru rædd tengsl Franklin Roosevelt fyrrum Bandaríkjaforseta við Gísla sögu Súrssonar. Forsetinn sá var víst mikill áhugamaður um Íslendingasögurnar einsog reyndar fjölmargir aðrir já það er alveg ótrúlegt hve þetta er geggjuð smiðja ég held svei mér þá að engin skáldskaparjöfur eigi eftir að toppa þessar sögur ekki einu sinni Arnaldur og ekki heldur Gryðir en báðir eru þó flunkuklárir pennar. En aftur að Roosevelt og Íslendingasögunum. Þegar hann var spurður hver væri uppáhaldssagan sín sagði hann án þess að pæla - ,,Gísla saga Súrssonar" og ekki nóg með það heldur toppaði hann sjálfan sig með því að segja. ,,Og ég var Gísli Súrsson í fyrralífi."
Þá vitum við það.
GÍSLI SÚRSSON Í STAR WARS
3.3.2008 | 13:01
Í morgun sýndi Kómedíuleikhúsið verðlaunaleikinn Gísla Súrsson í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ en þessa dagana er sá Súri einmitt á ferð og flugi milli skóla fyrir sunnan. Það var alveg feikilega gaman og mikið stuð í morgun og krakkarnir voru sko að fíla Gísla en það hafa líka allir hinir gert en sýningin er nú að nálgast 170 salíbunur. En samt hefur sá Kómíski alltaf jafn gaman að því að leika ævintýri útlagans enda verður það þannig að vera ef leikarinn hefur ekki gaman þá á hann bara að fara að gera eitthvað annað. Á skólasýningum gerist oft margt skondið en þó held ég að aldrei hafi það verið eins óvænt og núna í morgun. Reyndar gerðist þetta eftir sýningu. Kómedíuleikarinn stendur þarna á sviðinu í fornmannabúningnum og þar sem hárið er orðið nokkuð mikið verður hann að hafa teygju í hárinu. Nema hvað á sama stað og leiksýningin fer fram er einnig matsalur skólans. Þeir sem nú eiga að fá að snæða voru ekki á sýningunni og þurftu því margs að spyrja og var reynt að svara sem best og skilmerkilega. Allt í einu stekkur einn sprækur drengur inní salinn alveg á hlaupunum. Snarstansar þegar hann sér Kómedíuleikarann á sviðinu í formannadressinu og með teygjuna í hárinu og segir: Hva, á að fara að sýna Star Wars?"
Þetta verður varla toppað.