200 ÁHORFENDUR
26.11.2007 | 16:00
Jólaleik Kómedíuleikhússins Jólasveinar Grýlusynir hefur verið vel tekið. Nú þegar er búið að sýna verkið 4 sinnum og hafa um 200 manns séð leikinn sem er sérlega gott þar sem leikhúsið tekur ekki nema 55 manns í sæti. Jólasveinar Grýlusynir verður á fjölunum í Tjöruhúsinu á Ísafirði allar helgar í nóvember og desember. Næsta sýning er á laugardag 1. desember kl.14.00. Miðasala stendur yfir á heimasíðu Kómedíu www.komedia.is undir liðnum Kaupa miða. Allir í jólaleikhús.
Kómedíuleikarinn og Stúfur í stuði.
Mynd: Halldór Sveinbjörnsson
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.