TVEGGJA ÞJÓNN Á SIGLÓ Í KVÖLD
29.2.2008 | 17:34
Þriðja sýning á ærslaleiknum Tveggja þjónn verður í BíóCafe á Sigló í kvöld. Húsið opnar kl.20 og sýning hefst hálftíma síðar. Það er óhætt að segja að leikurum Leikfélags Siglufjarðar hafi verið vel tekið enda er hér á ferðinni fjörugur leikur eftir ítalska skáldið Carlo Goldoni. Tveggja þjónn er hans þekktasta stykki en hann samdi reyndar tæplega 200 stykki þannig að hann kunni nú nokkuð fyrir sér í leikbókmenntadeildinni. Það er Kómedíuleikarinn sem leikstýrði verkinu. Aðsókn á Tveggja þjón hefur verið mjög góð og nú er bara að fjölmenna í BíóCafé á Tveggja þjón. Góða skemmtun.
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.