LÍFIÐ HANS LEIFS OG ENGLAR Í SNJÓNUM
15.6.2008 | 13:47
Fimmtudagur 3. júlí á Act alone 2008
Kl. 22.00. Hamrar
FYRIRLESTUR UM ,,LÍFIÐ HANS LEIFSLeikari, höfundur, leikstjóri: Leifur Þór Þorvaldsson
Í verkinu er gert grein fyrir undarlegum atvikum og staðreyndum úr lífi höfundarins sem gætu varðað okkur öll. Í verkinu takast á raunveruleikinn og gerfiheimur leiksviðsins í leitinni að hinni óræðu línu sem sker á milli raunverunar og draumaheimsins.
Kl.22.30. Hamrar
ENGLAR Í SNJÓNUM
Höfundur: Unnur Guttormsdóttir
Leikari: Hörður S. Dan
Leikstjórn: Sigrún Óskarsdóttir
Lítið verk um súrsætar minningar Harðar. Hann dregur hverja upplifun æsku sinnar á fætur annarri úr hugskoti sínu og deilir þeim með okkur á hugljúfan hátt. En á bakvið minningarnar dvelur sagan um einmana dreng og hans raunir.
Flokkur: Menning og listir | Breytt s.d. kl. 16:03 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.