Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
AÐVENTA AÐ SUMRI
31.5.2008 | 00:13
AÐVENTA
Laugardaginn 5. júlí kl.22 í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Möguleikhúsið
Eftir Gunnar Gunnarsson
Leikgerð, leikstjórn: Öldu Arnardóttur
Leikmynd, búningar: Messíana Tómasdóttir
Lýsing: Bjarni Ingvarsson
Tónlist, hljóðfæraleikur: Kristján Guðjónsson
Leikari: Pétur Eggerz
Þannig hefst saga Gunnars Gunnarssonar, Aðventa. Bókin kom út árið 1939 og er hún sú saga Gunnars sem sem víðast og oftast hefur verið gefin út. Hún kom fyrst út á dönsku, en síðar þýddi höfundurinn hana sjálfur á íslensku.
Hér er sagt frá svaðilförum vinnumannsins Benedikts sem fer til fjalla í vetraríki aðventunnar að leita þess fjár sem eftir varð er smalað var um haustið. Það er köllun hans að koma þessum eftirlegukindum til byggða fyrir hátíðirnar. Söguna byggir höfundur á frásögnum af frægum svaðilförum Benedikts Sigurjónssonar, öðru nafni Fjalla-Bensa, á Mýrdalsöræfum og einkum þó eftirleitarferð sem hann fór í desember 1925. Þetta er klassísk saga um náungakærleika og fórnfýsi í vetrarhörkum íslenskra öræfa.
Í sýningunni er unnið eftir aðferðum frásagnarleikhússins þar sem einn leikari. Pétur Eggerz, stendur á sviðinu, flytur söguna og bregður sér jafnframt í hlutverk helstu persóna. Þá skipar hljóðmynd stóran sess í sýningunni og á þátt í að skapa heim sögunnar, en höfundur hljóðmyndarinnar er Kristján Guðjónsson sem hér vinnur sitt fyrsta verkefni með Möguleikhúsinu.
KÓMEDÍUFRÚIN OPNAR MYNDLISTARSÝNINGU Í DAG
30.5.2008 | 13:18
Kómedíufrúin, Billa, opnar myndlistarsýningu í Einarshúsi í Bolungarvík í dag kl.17. Boðið verður uppá léttar veitingar og allir hvattir til að mæta. Sýningin verður í gangi fram á sumar og verður opin á opnunartíma Einarshús. Frúin mun sýna pennateikningarnar sínar vinsælu sem hafa vakið mikla athygli og verið sýndar víða um land bæði hér vestra, fyrir norðan og sunnan. Um er að ræða sölusýningu og því gefst einstakt tækifæri að eignast glæsileg listaverk eftir Kómedíufrúna. Sjáumst í Einarshúsi.
BÚLÚLALA Í HAUKADAL Í KVÖLD
29.5.2008 | 13:38
Kómedíuleikhúsið bregður sér í sveitina í Haukadal í Dýrafirði í kvöld. Í Haukadalnum er hið Kómíska samkomuhús og þar verður ljóðaleikurinn vinsæli Búlúlala sýndur. Leikurinn hefst kl.20. Miðapantanir eru á heimasíðu Kómedíu www.komedia.is Sjáumst í sveitinni í kvöld.
Kómedíuleikarinn og Þröstur Jóhannesson í Kómískri ljóðasveiflu í Búlúlala
FRUMSÝNINGARMÁNUÐURINN MIKLI
29.5.2008 | 12:59
Leikurinn heitir Pétur & Einar og er samstarfsverkefni Einarshússins í Bolungarvík og Kómedíuleikhússins. Verkið verður frumsýnt í Einarshúsi laugardaginn 31. maí klukkan 16:00. Önnur sýning verður á sunnudag klukkan 16:00 og fleiri sýningar munu fylgja í kjölfarið. Þar mun Elfar Logi túlka líf og störf þeirra manna sem settu hvað mestan svip á Bolungarvík á miklum uppgangstímum og sveipa sögu þeirra ævintýraljóma. Frumkvöðlarnir Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson voru miklir athafnamenn hvor á sínum tíma og stjórnuðu stórveldum sínum af skörungsskap. Þeir bjuggu báðir í húsi harma og hamingju, Péturshúsi sem síðar var nefnt Einarshús.
Í sýningunni leiða Soffía Vagnsdóttir og Elfar Logi saman hesta sína öðru sinni en á síðasta ári settu þau upp sýninguna Jólasveinar Grílusynir sem sýnd var við góðan orðstýr í Tjöruhúsinu. Þar að auki voru íbúar bæjarins kallaðir til aðstoðar og brugðu þeir sér í hljóðver í Bolungarvík og sungu með íðilfögrum röddum, allt frá jólalögum og sálmum til vel þekktra þorrablótsvísna.
Það var Ragna Jóhanna Magnúsdóttir veitingamaður í Einarshúsi sem átti frumkvæðið að uppsetningu sýningarinnar og vinnur að fjármögnun verksins. Fékk hún Elfar Loga og Kómedíuleikhús hans til liðs við sig til að koma sögunni á fjalirnar.
Sumir segja að Kómedíuleikarinn sé ofvirkur.
NIÐURTALNING FYRIR ACT ALONE
27.5.2008 | 17:37
Í gær hófst formlega kynning á dagskrá Act alone 2008 leiklistarhátíðarinnar á Ísafirði. Hátíðin verður haldin dagana 2. - 6. júlí á Ísafirði og verður boðið uppá geggjaða dagskrá 24 sýningar, leiklistarnámskeið og fyrirlestur. Til að stytta biðina fyrir hátíðina einleiknu verður dagskráin kynnt næstu vikunnar á Act alone vefnum www.actalone.net Fjallað verður um hverja sýningu fyrir sig auk þess sem sagt verður frá ýmsum atburðum hátíðarinnar s.s. Act alone verðlaununum sem verða nú afhent í fyrsta sinn. Kynningin á Act alone 2008 hefst hins vegar á Leiklistarnámskeiði hátíðarinnar. Allt um það hér að neðan:
Act alone 2008
Leiklistarnámskeið
HVAÐ FELST Í TEXTANAUM? OG HVERNIG KOMUM VIÐ ÞVÍ TIL SKILA Í FLUTNINGI?
Kennari: Sigurður Skúlason, leikari
Staður: Háskólasetur Vestfjarða
Fimmtudag 3. júlí kl. 13.30 16.00Föstudag 4. júlí kl. 13.30 16.00
Þátttökugjald: 10.000.-
Skráning: Háskólasetur Vestfjarða sími: 450 3040
Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfang Háskólaseturs info@hsvest.is
Sigurður Skúlason leikari heldur námskeið í textaflutningi, laust mál og bundið. Mikilvægi þess að geta greint texta og túlkað er mikilvægt öllum leikurum sem og öðrum sem koma fram hvort heldur á bæjarstjórnarfundi eða á þorrablóti. Sigurður Skúlason er vel kunnur fyrir leik sinn í sjónvarpi og í kvikmyndum auk þess sem rödd hans er vel kunn í útvarpi. Óhætt er að segja að Sigurður sé meðal bestu upplesara hér á landi og er því mikill fengur að geta boðið uppá þetta vandaða námskeið á Act alone 2008. Rétt er að geta þess strax að þátttakendafjöldi á námskeiðinu er miðaður við 15 manns og er því rétt að vera snöggur að skrá sig.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 17:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
BÚLÚLALA Á FLATEYRI Í KVÖLD
23.5.2008 | 12:17
Ljóðaleikurinn sívinsæli Búlúlala - Öldin hans Steins verður sýndur á Vagninum á Flateyri í kvöld. Sýningin hefst kl.21 og er miðasala við innganginn en einnig er hægt að panta miða á heimasíðu Kómedíu www.komedia.is Kómedíuleikhúsið er nú á ferð og flugi um Vestfirðina með Búlúlala fyrr í vikunni var leikurinn sýndur í Baldurshaga á Bíldudal og að vanda voru Bílddælingar duglegir að mæta í leikhúsið enda staðurinn þekktur leik- og listabær. Á morgun verður skundað til Bolungarvíkur og sýnt í hinu magnaða Einarshúsi og hefst sú sýning kl.21. Semsagt Búlúlala alla helgina.
Í Bæjarins Besta í dag er lofsamlegur dómur um Forleik sýningu Kómedíuleikhússins og Litla leikklúbbsins á Ísafirði. Nú er bara að skella sér á Forleik. Næsta sýning er á morgun föstudag 23. maí kl.21 á Veitingastaðnum við Pollinn. Miðasala á heimasíðu Kómedíu www.komedia.is
Hér er dómurinn í Bæjarins Besta:
Frumsýning leiksýningarinnar Forleiks á veitingastaðnum Við Pollinn á föstudag heppnaðist í alla staði vel. Fjórir áhugaleikarar sýndu ólíka en afar áhugaverða íslenska leiki; Súsan baðar sig eftir Lárus Húnfjörð, Munir og minjar eftir Þórunni Guðmundsdóttur, Það kostar ekkert að tala í GSM hjá guði eftir Pétur R. Pétursson og Örvænting eftir Jónínu Leósdóttur. Leikarar eru þau Marta Sif Ólafsdóttir, Marsibil Kristjánsdóttir, Árni Ingason og Sveinbjörn Hjálmarsson og stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Sýningin er metnaðarfull og stigu leikararnir ekki eitt feilspor undir styrkri leikstjórn Elfars Loga Hannessonar en Forleikur er samstarfsverkefni Kómedíu-leikhússins og Litla leikklúbbsins á ísafirði.- Sýningin byrjar á dramaleikritinu Örvæntingu þar sem Marsibil Kristjánsdóttir leikur konu sem reynir að lappa upp á óhamingjusamt líf sitt með því að lappa upp á útlitið. Áhorfendur fylgjast með henni er hún bíður eftir því að fara á skurðarborðið í ítarlega lýtaaðgerð. Þrátt fyrir að á yfirborðinu virðist konan hafa það gott með vel stæðan eiginmann, börn og fallegt hús er ekki allt eins og það sýnist og grunnt undir yfirborðinu kraumar á örvæntingu og djúpstæðri óhamingju. Marsibil náði afar vel að láta þögula örvæntinguna skína í gegn þrátt fyrir að konan væri að reyna sannfæra áhorfendur og um leið sjálfa sig um að lífið væri ljúft.
- Því næst var slegið á létta strengi og hláturtaugarnar kitlaðar með háalvarlegu efni, sjálfum dauðanum. Það kostar ekkert að tala í GSM hjá Guði fjallar um yfirborðskenndan efnishyggjumann sem lýsir síðustu augnablikum lífs síns og fyrstu stundum hans fyrir handan. Það sem er efst á borði hjá honum er GSM síminn en hann var einmitt að tala í hann þegar hann lést. Sveinbjörn Hjálmarsson var óborganlegur í hlutverkinu og framkallaði mörg hlátrasköll frá áhorfendum.
- Viðfangsefni leiksins Munir og Minjar er safnaðareðlið í fólki en ófáir hafa það sem áhugamál og safna öllu milli himins og jarðar. Marta Sif Ólafsdóttir var óþekkjanleg í hlutverki gamallar og léttruglaðrar konu sem stolt segir frá sínu mesta afreki, að hafa safnað Hagkaupsblaðinu frá upphafi. Hlátursrokurnar sem þessi sérkennilega persóna framkallaði í salnum voru stöðugar í gegnum allan einleikinn og er óhætt að telja að margir hafi haft eymsli í kjálkum og mögum eftir öll ósköpin.
- Súsan baðar sig er ádeila á strípistaði sem notið hafa mikilla vinsælda á íslandi en jafnframt hlotið mikla gagnrýni. Árni Ingason leikur eiganda eins stærsta og virtasta súlustaðar höfuðborgarinnar. Hann segir frá því hversu vel smurð og góð starfsemi fer þar fram en ljóstrar í leiðinni upp að ekki er allt eins frábært og hann segir það vera og að peningagræðgin lætur menn leggjast ansi lágt. Árni fékk allan salinn til að taka þátt í einleiknum með tilheyrandi hlátrasköllum, lófataki, flauti, hrópum og köllum.
MORRINN Í STARTHOLUNUM
22.5.2008 | 12:30
BÚLÚLALA Á BÍLDUDAL Í KVÖLD
21.5.2008 | 14:53
Kómedíuleikhúsið sýnir ljóðaleikinn Búlúlala - Öldin hans Steins í Baldurshaga á Bíldudal í kvöld. Sýningin hefst kl.21 og fer miðasala fram við innganginn. Í þessari nýju sýningu Kómedíu leiða þeir saman hesta sína þeir Þröstur Jóhannesson og Kómedíuleikarinn. Flutt eru fjölmörg ljóð eftir Stein í leik, tali og söng en Þröstur hefur samið músík sérstaklega fyrir þessa uppfærslu. Búlúlala hefur fengið stormandi góðar viðtökur og í þessari viku verða alls þrjár sýningar. Á föstudaginn verður Búlúlala á Vagninum á Flateyri kl.21 og daginn eftir verður sýnt í Einarshúsi í Bolungarvík og hefst sú sýning kl.16. Þetta er ekki allt því vikuna þar á eftir verður Búlúlala sýnt í hinu frábæra samkomuhúsi í Haukadal í Dýrafirði. Að lokum má svo geta þess að Kómedíu hefur verið boðið að sýna leikinn á sérstakri Steins Steinarrs hátíð 21. júní á Snjáfjallaströnd og einnig hefur leikhúsið þegið boð um að sýna á Menningarnótt í Reykjavík sem verður haldin 23. ágúst. Semsagt líf og fjör í Kómedíunni. Miðasala á Búlúlala er á heimasíðu Kómedíu www.komedia.is
TREILER FORLEIKUR
13.5.2008 | 23:06
Það er hugur í leikurum á Ísó að vanda. Þessa dagana vinna Kómedían og Litli leikklúbburinn á Ísó að sýningu er hefur fengið heitið Forleikur. Hér er um að ræða bráðfjöruga einleikjasýningu sem er aðeins forleikurinn af þeim einleikjum sem koma skal í sumar á Act alone leiklistarhátíðinni. Forleikur verður frumsýnt núna á föstudag 16. maí á Hótel Ísafirði. Allir að panta miða á www.komedia.is
Þó leikúslistin sé gömul þá fylgjumst við vel með og bjóðum nú uppá for Forleik á Jútúb þar sem má sjá þennan treiler úr sýningunni:
http://www.youtube.com/watch?v=T4yFeeLK49g
Hey, það kostar ekkert að tala í gsm hjá guði