Vertu soldið þjóðlegur og fáðu þér Þjóðlega hljóðbók

Veturkonungur er í stuði og snjónum kyngir niður nú í upphafi Þorra. Gott er að ylja sér við að hlusta á Þjóðlegar hljóðbækur og vera um leið soldið þjóðlegur. Þjóðlegu hljóðbækurnar hafa notið mikilla vinsælda um land allt enda er hér á ferðinni mögnuð útgáfa og okkar eigin þjóðsagnaarfi. Þjóðlegu hljóðbækurnar fást hér á vefnum og rétt að geta þess að við greiðum sendingargjaldið og sendum um land allt strax í dag. Þjóðlegu hljóðbækurnar fást einnig í verslunum um land allt m.a. í Eymundsson og í Vestfirzku verzluninni á Ísafirði. Alls hafa komið út átta Þjóðlegar hljóðbækur þær eru: Þjóðsögur úr Vesturbyggð, Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ, Þjóðsögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum, Þjóðsögur frá Súðavík, Þjóðsögur af Ströndum, Þjóðsögur úr Bolungarvík, Bakkabræður og kímnisögur og loks sú nýjasta Draugasögur. Næsta Þjóðlega hljóðbók er væntanleg í febrúar og þá verða Galdrasögur í aðalhlutverki. Vertu soldið þjóðlegur og hlustaðu á Þjóðlegar hljóðbækur.

Annáll Kómedíuleikhússins 2011

,,Nú árið er liðið í aldana skaut og aldrei það kemur til baka" það er nebblega það þá er best að pára hér niður helstu Kómedíufréttir ársins 2011. Árið var vissulega mjög kómískt og annasamt hjá litla atvinnuleikhúsinu fyrir vestan. Þrjú ný íslensk leikverk voru frumsýnd en óhætt er að segja að Kómedíuleikhúsið sé með duglegustu leikhúsum landsins við að frumflytja ný íslensk leikverk. Auk þess voru kómískir kunningjar með Gísla Súrsson fremstan í flokki, áfram á fjölunum. Act alone leiklistarhátíðin var haldin áttunda árið í röð og tvær nýjar Þjóðlegar hljóðbækur voru gefnar út. Kómedíuleikhúsið er meðal elstu starfandi sjálfstærða leikhúsa á Íslandi í dag en verulega hefur fækkað leikhúsum og hópum landsins síðustu ár. En gaman er að geta þess að ný hafið árið, 2012, er einmitt stókómísktafmælisár ár því í maí verður Kómedíuleikhúsið 15 ára. Kómedíuleikhúsið hefur stórkómíska drauma og hefur alla tíð haft þó allir draumar hafi ekki ræst enda væri lítið varið í það. Afmælisárið verður örugglega sérlega kómískt en vandi er um slíkt að spá einsog segir í kvæðinu rifjum það frekar upp í lok árs. Víkjum heldur á nýliðnu Kómedíuári 2011.

Fyrsta frumsýning ársins var á tvíleiknum Vestfirskur skáldskapur á 57 mín og Vestfirsk tónlist á 27 mín 4. febrúar í Arnardal. Frumsýningardagurinn bar einmitt uppá afmælisdegi Kómedíustjórans, Elfars Loga Hannessonar, sem fagnaði árunum 40 með þessari sýningu og var það vel við hæfi. Kómedíusonurinn Ársæll Níelsson lék ásamt Elfari og með þeim á senunni var einnig Guðmundur Hjaltason, tónlistarmaður. Einsog nafn verksins gefur til kynna er hér verið að fjalla um hinn stórmerka vestfirska skáldskap. Byrjað var á Íslendingasögunum og svo fetað sig áfram í gegnum vestfirsku skáldskapasöguna allt til nútímans. Allt var þetta gert á 57 mínútum og geri aðrir betur. Ekki nóg með það heldur var einnig fjallað um vestfirska tónlist og það á aðeins 27 mínútum, það er greinilega allt hægt. Leikgerðina gerður þeir félagar en höfundur tónlistarinnar í verkinu sá Guðmundur um. Leikmynd og búninga gerði Marsibil G. Kristjánsdóttir. Leikurinn var sýndur við fantafínar viðtökur í Arnardal og loks í Reykjavík.

Næsta verkefni Kómedíuleikhússins var ekki síður djarft en Kómedían hefur ósjaldan tekið verk sem fáum dettur í hug að sé hægt að setja í leikbúning. Verkefnið var kannski sérlega djarft að þessu sinni en samt alltof freistandi til að sleppa því. Frægasti sonur Vestfjarða Jón Sigurðsson fagnaði tveggja alda afmæli og að sjálfsögðu var slegið upp veislu. Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar koma að máli við Kómedíuna þess efnis að búa til leikverk um sjálfstæðishetjuna. Að sjálfsögðu sögum við já og hófumst þegar handa. Elfar Logi Hannesson brá sér í hlutverk sveitunga síns Jóns Sigurðssonar og var einnig höfundur handrits en leikurinn fékk einfalda nafnið Jón Sigurðsson strákur að vestan. Marsibil G. Kristjánsdóttir gerði búninga og leikmynd. Ársæll Níelsson leikstýrði en þetta var jafnframt fyrsta leikstjórnaverkefni hins unga og efnilega leikhúslistamanns. Jón Sigurðsson strákur að vestan var frumsýndur á afmælisdegi söguhetjunnar þann 17. júní á æskuslóðum hetjunnar á Hrafnseyri við Arnarfjörð. Margir bjuggust við því að fá hér að heyra allar frægðarsögurnar af Jóni fjárkláðamálið, Vér mótmælum allir fundinn og allt það en allt kom fyrir ekki. Leikurinn fjallar nefnilega um æsku og mótunarár Jóns á Hrafnseyri sem voru sannarlega söguleg. Áhorfendur urðu samt ekki fyrir vonbrigðum enda er æskusaga ,,forsetans" fáum kunn. Leikurinn var sýndur í kapellunni á Hrafnseyri út sumarið. Í kjölfarið kom svo Haustleikferð Kómedíuleikhússins þar sem Jón Sigurðsson strákur að vestan var sýndur ásamt leiknum

Bjarni á Fönix en sögurnar tengjast ættar-og sögulegum böndum. Haustleikferðin stóð yfir í 16 daga þar sem sýndar voru 16 sýningar á jafnmörgum stöðum bæði á Vesturlandi og Vestfjörðum. Leikferðin heppnaðist hið besta og líklegt að Haustleikferð Kómedíuleikhússins verði að árlegum viðburði. Ekki var þó ævintýrinu lokið því leikhúsinu var boðið að sýna báða leikina í Kaupmannahöfn í Danmörku á vegum Íslendingafélagsins. Loks voru sýningar í höfuðborginni og á Selfossi.

Þriðja frumsýning ársins var svo í lok nóvember. Þar var á ferð sýning um vestfirsku jólasveinana sem sagt er frá í gömlu góðu þjóðsögunum en sveinar þessir hafa ekki sést meðal manna í áratugi. Leikurinn heitir Bjálfansbarnið og bræður hans. Sýnt var í Listakaupstað á Ísafirði þar sem Kómedíuleikhúsið hefur aðstöðu og var þetta jafnframt fyrsta frumsýningin í Listakaupstað. Höfundur og leikari er Elfar Logi Hannesson, Þórarinn Hannesson samdi jólasveinavísur sem fluttar eru í leiknum, Marsbil G. Kristjánsdóttir skapaði alla umgjörð leiksins þar á meðal jólasveinana sem voru allir túlkaðir með grímum og öllu ævintýrinu leikstýrði Ársæll Níelsson. Viðtökur voru framar öllum vonum og sýningar urðu alls 10 í Listakupstað. Á nýju ári er stefnt að leikferð um landið með Bjálfansbarnið og bræður hans.

Kómedíuleikhúsið hefur haslað sér völl á hljóðbókamarkaðnum svo eftir hefur verið tekið. Útgáfan nefnist Þjóðlegar hljóðbækur og bættust tvær nýjar við á árinu. Um vorið kom út Þjóðlega hljóðbókin Bakkabræður og Kímnisögur, í flutningi Ársæls Níelssonar og Elfars Loga Hannessonar. Um haustið voru það Draugasögur, í flutningi Elfars Loga, og var það jafnframt áttunda Þjóðlega hljóðbókin. Allar fást þær á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is og í verslunum um land allt.

Kómískir kunningjar voru einnig á fjölunum á árinu. Áður var minnst á sögulega einleikinn Bjarni á Fönix sem var sýndur víða um landið. Tófustykkið Gaggað í grjótinu var einnig sýnt á árinu í Melrakkasetrinu í Súðavík. Sýningin hefur gegnið í tvö leikár en aðsóknartölur voru kannski ekki þær allra hæstu á liðnu ári en þannig er það nú bara í leikhúsinu. Síðast en ekki síst var mjólkurkýr Kómedíuleikhússins á ferð og flugi sem aldrei fyrr. Hér er að sjálfsögðu átt við verðlaunaleikinn Gísli Súrsson sem gengur og gengur og gengur. Enda er hér einstök sýning á ferðinni sem eldist jafnvel betur en besta rauðvín.

Loks rann upp ágúst og það þýðir bara eitt hjá Kómedíuleikhúsinu. Act alone. Þessi einstaka leiklistarhátíð sem er helguð einleikjum og er meðal fárra slíkra í Evrópu var haldin áttunda árið í röð. Að vanda sá Kómedíuleikhúsið um listræna stjórn hátíðarinnar einsog það hefur gert allt frá upphafi. Hátíðin fór fram dagana 12. - 14. ágúst á Ísafirði og Hrafnseyri í Arnarfirði. Að vanda var boðið uppá rjómann af íslenska einleikjaárinu en alls voru sýndar níu sýningar og þar af gestasýning frá Noregi. Act alone lukkaðist í alla staði frábærlega og er án efa ein flottasta listahátíð landsbyggðarinnar í dag.

Einsog lesa má hefur Kómedíuárið verið fjölbreytt og viðamikið. Við erum bara nokkuð ánægð með okkar verk og þökkum það frábæru starfsfólki sem hefur staðið með okkur og unnið einstakt verk. Að ógleymdum öllum velunnurum, styrktaraðilum og síðast en ekki síst áhorfendum um land allt. Án ykkar allra væri Kómedían ekki jafn söguleg og hún er. Við munum áfram leitast við að gera okkar allra best í öllum okkar verkum og vonumst til að þið hafið áfram trú á okkur.

Það er við hæfi að ljúka þessu 2011 spjalli með því að kikka dulítið á 2012 og hvað sé framundan hjá Kómedíunni á nýbyrjuðu afmælisári.

Kómedían árið 2012

Skáldið á Þröm - Nýtt íslenskt leikverk frumsýnt á Suðureyri í mars

Listamaðurinn með barnshjartað - Nýtt íslenskt leikverk frumsýnt í Selárdal í júní

Act alone haldin níunda árið í röð dagana 10. - 12. ágúst Ísafirði og Suðureyri

Þrjár nýjar Þjóðlegar hljóðbækur gefnar út


Lokasýning á Bjálfansbarnið

Jólaleikritið Bjálfansbarnið og bræður hans hefur fengið frábærar viðtökur leikhúsgesta á öllum aldri. Leikurinn var frumsýndur síðustu helgina í nóvember og var sýnt allar helgar til jóla. Sérstök hátíðarsýning verður á jólaævintýrinu vinsæla föstudaginn 30. desember kl.17 í Listakuapstað á Ísafirði. Miðasala er þegar hafin í Vestfirzku verzluninni en ennig er hægt að bóka miða í miðasölusíma Kómedíuleikhússins 891 7025. Miðaverðið er það sama kómíska og góða aðeins 1.900.-kr. Vestfirsku jólasveinarnir Bjálfansbarnið og bræður hans halda nú aftur til síns heima eftir vel lukkaða endurkomu en sýning á föstudag verður sú tíunda. Bjálfansbarnið og bræður hans ætla nú að leggja sig næstu 10 mánuðina eða svo en mæta svo aftur fyrir jólin 2012 og stefna þá á leikferð um landið. Nú er bara að bóka sér miða í tíma og bjóða fjölskyldunni allri á sannkallað jólaævintýr.

Vinningshafar í Jólakortaleik Bjálfansbarnssins

Þorláksmessa gengin í garð og dregið hefur verið í Jólakortaleik Bjálfansbarnsins. Allir þeir eru komu í leikhúsið og sáu jólaleikritið Bjálfansbarnið og bræður hans, áttu kost á að taka þátt í frábærum jólakortaleik. Það var einfalt að vera með eina sem þurfti að gera var að fara með jólakortið í verslunina Hamraborg á Ísafirði og setja kortið í jólapottinn. Reyndar fengu korthafar óvæntan glaðning þegar þeir skiluðu kortinu því allir fengu gómsætt súkkulaði. Nú hefur verið dregið úr jólapottinum alls 35 vinninga, 10 maktintosh konfekti dósir og 25 Þjóðlegar hljóðbækur. Vinningshafar geta sótt vinningana strax í dag í versluninni Hamraborg á Ísafirði. Vinningshafarnir eru:

VINNINGAR Í JÓLALEIK BJÁLFANSBARNSINS

Makintosh – fá:
Daði Snær Grétarsson
Elma Katrín Steingrímsdóttir
Lína Björg
Vala Karítas Guðbjartsdóttir
Þorsteinn Goði Einarsson
Guðmundur Brynjar
Guðmunda Hreinsdóttir
Lára Gísladóttir
Jón Guðni Pétursson
Alda Iðunn

Þjóðlega hljóðbók – fá:
Lína Guðrún Gísladóttir
Alexandra
Einar Arnalds
Þráinn Orri Unnarsson
Stefán Örn
Sindri Freyr Sveinbjörnsson
Þorsteinn og Guðmundur Einarssynir
Helga Jónsdóttir
Karolína Aníkiej
Guðný Ósk Sigurðardóttir
Eva Rún
Sólrún Katla Elíasdóttir
Harpa Rögnvaldóttir
Alexender Hrafn Ársælsson
Karólína Mist Stefánsdóttir
Arna Eiríksdóttir
Sigríður R. Jóhannsdóttir
Katrín Lilja
Jónína Arndís Guðjónsdóttir
Einar G Jónasson
Stefánía Jóna Hafliðadóttir
Sóldís Björt
Þorleifur H Ingólfsson
Hjördís Harðardóttir
Rakel Antonsdóttir


Þjóðlega hljóðbók í jólapakkann

Þjóðlegu hljóðbækurnar hafa úrvals góðar viðtökur enda er hér á ferðinni vönuð útgáfa á einstökum þjóðsagnaarfi. Ekki spillir verðið fyrir en Þjóðlegu hljóðbækurnar kosta aðeins 1.999.- kr. Þjóðlegu hljóðbækurnar hafa verið vinsælar fyrir fólk á öllum aldri og ekki síst æskuna sem sýnir að þjóðsagnarfurinn eldist vel. Enda er hér verið að segja frá tröllum, álfum, draugum og ýmsum furðuverum þjóðsagnaheimsins íslenska. Þjóðlegu hljóðbækurnar fást í verslunum um land allt en meðal útsölustaða eru Vestfirzka verzlunin á Ísafirði, Vegamót á Bíldudal, verslanir Pennans og Eymundsson einnig er hægt að panta á heimasíðu Kómedíuleikhússins www.komedia.is
Kómedíuleikhúsið hefur gefið út átta Þjóðlegar hljóðbækur þær eru:
Þjóðsögur úr Ísafjarðarbæ
Þjóðsögur úr Vesturbyggð
Þjóðsögur af Ströndum
Þjóðsögur úr Bolungarvík
Þjóðsögur frá Súðavík
Þjóðsögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum
Bakkabræður og kímnisögur
Draugasögur

Vertu svolítið þjóðlegur og gefðu Þjóðlega hljóðbók í ár.


Vestfirska list í jólapakkann

Hvernig væri að gefa eitthvað einstakt fyrir þessi jól? Ekki hlutabréf nei heldur miklu frekar eitthvað sem er alvöru ávöxtun í. Svarið er vestfirsk list. Úrvalið er sérlega glæsilegt og fjölbreytt enda mikill kraftur í vestfirskum listum og listamönnum Vestfjarða. Myndlistarmenn eru margir og fást mörg frábær verk í Rammagerðin á Ísafirði og það er alveg staðreynd að myndverk falla aldrei í verði. Eða kannski að gefa tónlist það er fátt betra en að hlusta á flotta músík og þar er úrvalið geðveikt flott og mikið. Hin frábæra verzlun Vestfirzka verzlunin er með stærsta úrval landsins af vestfirskri tónlist Skúli Mennski, Mugison, BG, Jón Kr, Villi Valli já listinn er endalaus. Í sömu verzlun getur þú líka verzlað bækur sem eru sígildar jólagjafir. Úrvalið af bókunum er mikið öll útgáfa Vestfirska forlagsins auk ýmissa bóka frá öðrum vestfirskum útgefendum og einyrkjum. Hljóðbókin er í mikilli sókn og þá er rétt að benda á Þjóðlegu hljóðbækurnar sem Kómedíuleikhúsið á Ísafirði gefur út. Þjóðlegu hljóðbækurnar eru alls átta og eru m.a. Þjóðsögur frá Hornströndum og Jökulfjörðum, Bakkabræður og kímnisögur, Þjóðsögur frá Súðavík og sú nýjasta Draugasögur. Þjóðlegu hljóðbækurnar fást í Vestfirzku verzluninni og í verzlunum um land allt. Einnig hægt að panta beint frá útgáfubónda www.komedia.is Leikhúslíf á Vestfjörðum er í miklum ham og það væri mjög sneddý að gefa t.d. gjafabréf á sýningar Kómedíuleikhússins. Jólagjöfin í ár er sannarlega Vestfirsk list.

Síðustu sýningar fyrir jól á Bjálfansbarnið og bræður hans

Hið vinsæla jólaleikrit Bjálfansbarnið og bræður hans hefur gengið fyrir fullum Listakaupstað síðustu helgar. Um helgina verða síðustu sýningar fyrir jól á verkinu. Sýnt verður bæði laugardag og sunnudag kl.14.00 báða dagana miðasala er þegar hafin í Vestfirzku verzluninni og í miðasölusíma Kómedíuleikhússins 891 7025 . Bjálfansbarnið og bræður hans fjallar um vestfirsku jólasveinanna sem hafa ekki sést í mannabyggðum í eina öld ef ekki meira. Þessir sveinar eru sannkallaðir jólasveinar einsog nöfn þeirra gefa til kynna Froðusleikir heitir einn þeirra annar heitir Langleggur enn annar Lækjaræsir og ekki má gleyma sjálfu Bjálfansbarninu. Bjálfansbarnið og bræður hans er sannkallað jólaævintýr fyrir alla fjölskylduna. Rétt er að geta þess að sérstök hátíðarsýning verður milli hátíðanna og verður sú sýning föstudaginn 30. desember kl.17. Miðasala á þá sýningu er einnig hafin og gengur dúndur vel því um að gera að bóka sér miða í tíma.

Menningarráð Vestfjarða

Það eru engar ýkjur að menningarlíf á Vestfjörðum er mjög blómlegt og hefur verið í áraraðir.En það er alltaf hægt að gera meira og síðustu ár eða frá árinu 2007 hefur vestfirska menningin sett í fluggírinn á öllum sviðum listarinnar. Ástæðan er sú að þann 10. júní árið 2007 var Menningarráð Vestfjarða stofnað sem hefur sannarlega verið þvílíkt vítamínsprauta inní listina vestfirsku. Menningarráðið hefur úthlutað tvisvar á ári allar götur síðan til fjölbreyttra verkefna á öllum Vestfjörðum og var síðari úthlutun þessa árs núna í nóvemberlok. Svona ráð eru víða um landið og eru samstarf sveitarfélaga og ríkisins. Er án efa með betri verkefnum sem áðurnefndir hafa komið á fót síðasta áratug eða svo. Það skal alveg segjast einsog er að hér Vestra var verulega erfitt að fá opinbert fjármagn til góðra listaverka fyrir tilkomu Menningarráðs Vestfjarða. Menningarmálaráðuneytið hefur haft lítinn áhuga á listum á landsbyggð alveg frá örófi alda. Í því samhengi nægir að nefna skilningsleysi ráðuneytisins á því að koma upp atvinnuleikhúsi á Vestfjörðum. Enn í dag er engin stemmari fyrir slíku á Sölvhólsgötunni. Þegar bæjaryfirvöld í Ísafjarðarbæ hófu viðræður við ráðuneytið þess efnis að gera þríhliða samning við vestfirska atvinnuleihúsið þá var svar Menningarráðuneytisins strax einfalt og skorinort, nei. Þannig að úr varð aðeins tvíhliðasamningur milli Ísafjarðarbæjar og leikhússins og þannig er það enn. Það er stórundarlegt að Menningarmálaráðuneytið sjá ekki hvílíkir möguleikar felast í listum á landsbyggð. Hvað veldur veit ég ekki - kannski það að engin stefna er til um menningarmál á Íslandi. Og meðan svo er verða náttúrulega engar breytingar.
Nú er að vona að Menningarráð Vestfjarða muni áfram starfa af krafti og helst fá tækifæri til að stækka og dafna enn frekar. Því það eru veruleg tækifæri í vesfirskri menningu.
Heimasíða Menningarráðs Vestfjarða
www.vestfirskmenning.is

Vestfirska leikárið 2011 - 2012

Kynningarbæklingurinn Vestfirska leikárið 2011 - 2012 er kominn út og hefur þegar verið dreift inná öll heimili á Vestfjörðum. Þetta er þriðja árið í röð sem leikhús og leikfélög á Vestfjörðum sameinast um að kynna leikárið í sameiningu. Enda miklu betra að gera hlutina saman en hver sé að pukrast í sínu horni. Menningarráð Vestfjarða styrkir útgáfuna með rausnarlegu framlagi og gerir útgáfuna mögulega. Það ánægulega er að leikhúslífið á Vestfjörðum er í mikilli sókn þessi misseri og leikfélögum fjölgar frá fyrra leikári. Þeir sem kynna sig í Vestfirska leikárinu 2011 - 2012 eru Act alone, Kómedíuleikhúsið, Litli leikklúbburinn og Vestfirska skemmtifélagið á Ísafirði, Leikfélag Bolungarvíkur, Höfrungur leikdeild á Þingeyri og Leikfélag Patreksfjarðar. Vestfirska leikárið er sannarlega fjölbreytt og freistandi. Kómedíuleikhúsið frumsýnir þrjú ný íslensk verk, Bjálfansbarnið og bræður hans, Skáldið á Þröm og Listamaðurinn með barnshjartað. Litli leikklúbburinn býður uppá Dampskipið Ísland, Leikfélag Bolungarvíkur sýnir farsann Að eilífu, Höfrungur er með íþróttaleikrit Höfrungur á leiksviði, Leikfélag Patreksfjarðar er með Tíu þjónar og einn í sal og nýjasta leikhús Vestfjarða verður með leik- og söngvasjóvið Vestfirsku dægurlögin. Síðast en ekki síst verður Act alone leiklistarhátíðin haldin níunda árið í röð á Ísafirði og Suðureyri í ágúst. Blómin vaxa vel í hinu Vestfirska leikhúsi og við hlökkum til að hitta landsmenn alla í leikhúsum Vestfjarða.

Oddur Björnsson minning

Góður og einstakur vinur er horfinn af sviðinu. Oddur Björnsson leikskáld og leikstjóri. Það er ekki auðvelt að eignast góðan og traustan vin en við hjónin vorum svo heppinn að fá að kynnast Oddi og erum þakklát fyrir einstakt ævintýr sem við áttum saman. Við kynntumst Oddi eða Oddaranum einsog skáldið frá Bíldudal Hafliði heitinn Magnússon kallaði hann, árið 1993 á Bíldudal. Oddur var kominn til að leikstýra hjá Leikfélaginu Baldri og hinn ungi leikari, Elfar Logi, var settur í það að vera formaður leikfélagsins. Á svið var settur farsinn Klerkar í klípu og Oddur rúllaði þessu upp og gerði úr þessa flottu sýningu sem gekk og gekk og gekk, alveg einsog alvöru farsi. Oddur hafði aðsetur í krúttlegu húsi í fjörunni er nefnist Sæbakki. Ósjaldan fór hinn ungi leikari í heimsókn til leikstjórans að loknum æfingum og þá var nú heldur betur spjallað og ekkert verið að láta klukkuna trufla sig. Oddur varð strax kær og góður vinur okkar en það er nú ekki sjálfgefið hjá öllum leikstjórum en svona var Oddur, tók öllum vel sannur mannvinur. Enn jókst gleðin þegar að frumsýningu kom því þá kom eiginkona Odds hún Beggó og þar eignuðumst við hjónin annan vin. Í raun eignuðust Bílddælingar allir frábæra og einstaka vini því Oddur og Beggó fíluðu sig svo vel á Sæbakkanum að þau keyptu húsið. Koma þeirra hjóna í litla þorpið á Bíldudal var einsog vítamínsprengja í allt mann- og listalíf enda tóku nú ævintýrin að gerast. Oddur átti eftir að leikstýra oftar hjá Leikfélaginu Baldri. Árið 1994 setti hann á svið Karíus og Baktus með miklum bravúr. Ári síðar leikstýrði hann síðan eigin verki Jóðlíf þar sem leikarinn ungi, Elfar Logi, lék annað jóðið. Uppfærsla þessi er enn í minnum höfð á Bíldudal enda sannkallað listaverk því Beggó gerði einnig einstaka leikmynd og við hjónin vorum svo heppinn að fá að taka þátt í þessu ævintýri því Billa aðstoðaði Beggó við búninga og leikmynd. Sama ár fór hinn ungi leikari, loksins, í leiklistarnám og hvatning Odds var gott veganesti í þann skóla, og ekki sakaði að hafa fengið góða skólun á sviðinu hjá meistaranum. Við söknum þín Oddur en minnumst einstakra stunda við vorum sannarlega lánsöm að fá að kynnast þér. Við hneigjum okkur djúft fyrir þér að hætti leikarans. Elsku Beggó sendum kærar og einlægar kveðjur til þín og allra aðstandenda.
Billa, Elfar Logi og þrjár systur

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband