ACT ALONE 2008 - EINLEIKIR ÓSKAST

Leiklistarhátíðin Act alone á Ísafirði verður haldin dagna 2. - 6. júlí í sumar og er þetta fimmta árið í röð sem hátíðin er haldin. Act alone er eina árlega leiklistarhátíðin á Íslandi og er aðgangur ókeypis en sá háttur hefur verið hafður á frá upphafi. Það er Kómedíuleikhúsið sem stendur fyrir Act alone og er Kómedíuleikarinn listrænn stjórnandi gleðinnar. Undirbúningur fyrir Act alone 2008 er langt kominn og vinnur nú listrænn stjórnandi hátíðarinnar að mótun dagskrárinnar. Þeir sem hafa áhuga á að koma með einleik eða einleikna uppákomu á Act alone 2008 eru beðnir um að setja sig í samband við hátíðarhaldara á netfangið komedia@komedia.is Act alone hátíðin hefur stækkað ár frá ári í fyrra var t.d. myndlistin tekin inn þegar boðið var uppá sýningu á verkum tveggja einfara í íslenskri myndlist. Tvær nýjar listgreinar bætast nú inní Act alone flóruna það er dans og tónlist. Act alone er því ekki aðeins leiklistarhátíð heldur orðin fjölbreytt listahátið. Act alone hefur þegar sannað tilgang sinn og er í dag ein stærsta listahátíðin á landsbyggðinni. Þegar hafa verið bókaðar tvær einleiknar danssýningar og einnig einleikur á fiðlu. Fjölmagir íslenskir einleikir verða á dagskrá Act alone 2008 og allaveg tvær erlendar gestasýningar þar á meðal er verðlaunasýning frá Búlgaríu sem nefnist Chick with a Trick. Nánari upplýsingar um Act alone eru á heimasíðu hátíðarinnar www.actalone.net

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband