EINLEIKIN MYNDLIST Á ACT ALONE 2008

Einsog áður hefur komið fram verður ekki bara boðið uppá leikverk á Act alone 2008. Þegar hefur verið sagt frá danssýningum sem verða nú í fyrsta sinn partur af Act alone en alls verða sýnd þrjú einleikin dansverk. Árið 2005 varð tónlistin partur af einleikna prógraminu þegar Hörður Torfa steig á stokk og síðan þá hefur ávallt verið boðið uppá eins manns tónleika. Í fyrra kom síðan myndlistin inn og í ár verða tvær myndlistarsýningar sem báðar verða sýndar í Félagsheimilinu í Haukadal í Dýrafirði.

Act alone 2008

Sunnudagur 6. júlí

Kl.16.00.    Félagsheimilið Haukadal Dýrafirði

TVÆR MYNDLISTARSÝNINGAR:

GÍSLA SAGA SÚRSSONAR Í MYNDUM

billa3
Íslendingasögurnar hafa löngum verið listamönnum innblástur og ófáir hafa gert myndverk eða leikrit sem sótt eru í þessi merku bókmenntaverk. Listakonan Marsibil G. Kristjánsdóttir hefur nú bæst í þennan hóp og í þessari sýningu vinnur hún með þekktar setningar úr Gísla sögu Súrssonar sem hún túlkar í einstökum verkum. Þess má geta að þessi sýning er sýnd samtímis á þremur sögustöðum Gísla sögu, í Haukadal, í Arnarfirði og á Barðaströnd.


 

VESTFIRSKIR EINFARAR

Einstök myndlistarsýning á verkum eftir listahjónin Gunnar Guðmundsson og Guðmundu Jónu Jónsdóttur frá Hofi í Dýrafirði. Bæði fóru sínar eigin leiðir í listinni og eru því í hópi svonefndra einfara í hinum íslenska myndlistarheimi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halla Signý Kristjánsdóttir

var að koma úr kaffileikhúsi, saga Einars og Péturs í Einarhúsi í Bolungarvík. Mæli eindregið með þessari sýningu fær 5 störnur af 4. mögulegum. Takk fyrir frábæra sýningu!

Halla Signý Kristjánsdóttir, 19.6.2008 kl. 22:26

2 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Takk fyrir það Halla já ég skemmti mér mjög vel líka. Næsta sýning á Pétri og Einari er næsta fimmtudag 26. júní kl.20

Elfar Logi Hannesson, 20.6.2008 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband